Námskrá
Titill: | Námslína í ferðaþjónustu - Kjarni og böð, lindir, lón (Staðfestingarnúmer 544) 23-544-2-1800 |
Lýsing: | Heildstætt nám í ferðaþjónustu (HNÍF) er nám á framhaldsskólastigi, ætlað fólki sem hefur áhuga á að vinna í ferðaþjónustu eða er þegar við störf innan geirans. Námslínan er byggð upp sem tveir hlutar, kjarni og sérhæfing. Kjarninn er sá sami óháð sérhæfingu, 40 einingar. Lagt er upp með fjórar línur sérhæfingar í takti við mismunandi greinar ferðaþjónustu. Við lok náms hafa nemar öðlast færni á 2. hæfniþrepi í samræmi við Hæfniramma um íslenska menntun. Tilgangur námsins er að þjálfa upp og styrkja þekkingu, færni og fagkunnáttu til ferðaþjónustu sem starfs- og þjónustugreinar. Jafnframt að styrkja nema undir að takast á við helstu viðfangsefni starfa í íslenskri ferðaþjónustu, sérstaklega á sviði viðkomandi sérhæfingar og að efla almenna starfshæfni nemanna. Námið tengist einnig starfaprófílum í ferðaþjónustu og fjölbreyttum störfum á vettvangi ferðaþjónustu auk styttri námskráa FA í ferðaþjónustu. Markmið námsins er að við námslok sé færni til að starfa með nokkru sjálfstæði við afmörkuðuð viðfangsefni algengra starfa sem tengjast þjónustu við fjölbreyttan hóp ferðafólks og jafnframt að námið sé góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám til frekari sérhæfingar á sviði ferðaþjónustu. Hæfniþrep Námskráin Námslína í ferðaþjónustu – Kjarni og böð, lindir, lón er skilgreind með námslok á öðru þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námið sem heild er 1800 klukkustundir, 30 námsþættir og 90 (40+50) einingar á framhaldsskólastigi. Fyrir liggur samkomulag milli FA og Borgarholtsskóla og fleiri framhaldsskóla um að námseiningar þessarar námskrár eru að fullu metnar inn í skólann til námsloka námskrárinnar. Kjarni telur 800 klukkustunda vinnuframlag nema (40 feiningar) og sérhæfing er 1000 klukkustundir (50 feiningar). Miðað er við að meðalnámstími sé þrjár til fjórar annir. Hluti I (kjarni) eru 16 námsþættir og 40 einingar á framhaldsskólastigi. Hluti II (sérhæfing) eru 13 námsþættir og 50 einingar á framhaldsskólastigi. Möguleiki er á að óska eftir mati á náminu í framhaldsskóla og námið verði metið að fullu inn í framhaldsskóla, sérlega skóla sem bjóða upp á námslínuna. Þær sérhæfingar eru móttaka; fjallamennska; böð, lindir, lón og veitingar. Óski fólk eftir almennu mati í framhaldsskóla getur verið breytilegt eftir námsbrautum og skólum hver niðurstaða verður en skólastjórnendur hvers skóla eru ábyrgir fyrir mati skólans á námi frá öðrum fræðslustofnunum. |
Grunnupplýsingar
Inntökuskilyrði: | Fullorðið fólk á vinnumarkaði sem býr yfir færni sem þarf til að takast á við alla hluta námsins. |
Skipulag: | Viðurkenndur fræðsluaðili ber ábyrgð á framkvæmd námsins og skipar verkefnastjóra sem hefur umsjón með námsleið, nemendahópi, leiðbeinendum og allri framkvæmd. Einnig sér verkefnastjóri til þess að leiðbeinendur kynni námsfólki kennsluáætlun hvers námsþáttar. Í kennsluáætlun koma fram upplýsingar um kennsluaðferðir, námsefni, hæfniviðmið og námsmat, auk tímasetninga kennslu og verkefnaskila þar sem við á. Verkefnastjóri sér til þess að skipulag námsþátta sé í rökréttu samhengi, samþættir eins og kostur er sem og tímaskiptingu með leiðsögn leiðbeinanda annars vegar og í sjálfstætt nám hins vegar. Áhersla er á að leiðbeinendur noti fjölbreyttar kennsluaðferðir sem henta fullorðnum, beiti samþættingu námsþátta og nýti viðfangsefni úr daglegu lífi í innlögn og verkefni. Heimavinna getur verið mismikil eftir námsþáttum og einstaklingum. Gera þarf ráð fyrir að koma til móts við ólíkar þarfir strax við upphaf náms svo viðfangsefni og stuðningur séu við hæfi og styrki og styðji nema við að ná settum hæfniviðmiðum. Námið er bæði bóklegt og verklegt og fer að hluta fram á vinnustað. Vinnustaðanám / verkþjálfun er hluti af náminu. Áhersla er lögð á að verkefnastjóri náms og yfirmaður þjálfunar á vinnustað fylgist með framvindu, tryggi að þjálfun nái til allra þátta í náminu og styðji nemana í því sem snýr að þjálfun á vinnustað. Reynsla í störfum innan ferðaþjónustu er metin á skipulagðan hátt inn í námið. Þegar nýjar sérhæfingar eru settar inn í skipulagið þurfa þær að vera í samræmi við hlutfall þrepa í námslínunni og miðast við að 25-50% séu á hæfniþrepi 1, 50-75% séu á hæfniþrepi 2 og 0-10% séu á hæfniþrepi 3. Námskráin er hluti af heildstæðu námi í námslínu í ferðaþjónustu. Þessi hluti er alls 1800 klukkustunda vinnuframlag nema. Verkefnastjóri náms hjá fræðsluaðila metur hæfi umsækjenda í námið. Auk þess meta leiðbeinendur forþekkingu við upphaf hvers námsþáttar. |
Námsmat: | Námsárangur er metinn með fjölbreyttum aðferðum sem lýst er í kennsluáætlun með áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema. Gert er ráð fyrir að ferilbók nýtist í tengslum við verk- og vinnustaðanám þar sem við á. Áhersla er lögð á að bæði leiðbeinendur og nemar fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist og hvernig gangi að ná hæfniviðmiðum námsins. Námsmat nýtist sem staðfesting á námsárangri og jafnframt sem lærdómur, hvatning og endurgjöf á námstímanum. |
Starfsnám: | Verkþjálfun / vinnustaðanám er hluti af skilgreindum kjarna og fer fram samhliða til að styðja við yfirfærslu náms við hefðbundnar aðstæður í vinnu. Miðað er við að stærri hluti náms í kjarna geti farið fram á vinnustað ef aðstæður nema eru með þeim hætti. Skipulag vinnustaðnáms í sérhæfingu er mismunandi eftir eðli náms. Einnig er miðað við að fyrri reynsla á vinnustað og hæfni sem nemi hefur áunnið sér geti verið metin til eininga/hluti af vinnuframlagi námskrár. Verkefnastjóri útfærir vinnustaðanámið í takt við þarfir samstarfsaðila og nemanna hverju sinni. Verkefnastjóri og/eða yfirmaður þjálfunar á vinnustað fylgist með framvindu, tryggir að þjálfun nái til allra þátta náms og styðji nema í því sem snýr að þjálfun á vinnustað. |
Markhópar |
|
Hæfni-, þekkingar- og leikniviðmið |
|
Nemendastundir Fjöldi klukkustunda til að ljúka námskrá
1800 klst. |
Kjarni Námsþættir í námskrá
Credits Percentage
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir námsþættir sem hægt er að velja/meta í námskránni
Nei, frjálst val er ekki leyft