Json

Námskrá

Titill: Smiðja 1 - 2, 2 Færni á vinnumarkaði (Staðfestingarnúmer 567) 24-567-1-180
Lýsing: Námskráin, Smiðja 1 – 2, 2 Færni á vinnumarkaði, lýsir námi á 1. þrepi hæfniramma um íslenska menntun. Námskráin er grunnur að námslýsingu sem tekst á við hvert starf sem þjálfa skal til samkvæmt hæfniþrepi námskrárinnar. Megintilgangur með náminu er að nemar/þátttakendur fái góða innsýn í, læri og þjálfist í vinnulagi við að leysa verkefni sem felast í því starfi sem námslýsing fæst við. Ennfremur að fræða og ræða helstu þætti almennrar starfshæfni og skyld mál sem tekið er á í námskránni.
Þjálfun felst í að vinna verk sín á vandaðan og hagkvæman hátt með öryggi sitt og annarra í huga. Áhersla er á notkun hugtaka í tengslum við starfið ef þörf er á og verkfæri og efni sem við geta átt hverju sinni. Í náminu er gert ráð fyrir að nemi vinni verkið en með aðstoð ef þarf í fyrstu, til að ná markmiðum námsins. Með kynningu, samræðu og verklegri þjálfun öðlast nemar færni, verkkunnáttu og þjálfun til starfsins og þar er einkum litið til hagnýtra viðfangsefna. Í því felst m.a. að nemar fái ítarlegar munnlegar og sjónrænar leiðbeiningar og stuðning, ef þarf.
Markmið með Smiðju 1-2, 2 Færni á vinnumarkaði er að efla hæfni fólks til að sinna ákveðnum störfum á sérstöku sviði samkvæmt námslýsingu við þessa námskrá og því rík áhersla á vinnustaðanám sem er stór hluti námskrárinnar og fer fram við raun aðstæður, á vettvangi hvers starfs. Viðmið eru einkum að nemar afli þekkingar og þjálfi upp leikni fyrir tiltekin störf.

Námskráin er skrifuð sem snið til að útfæra lýsingar í þeim störfum sem þjálfa á fólk fyrir að vinna (námslýsingar / lýsingar á þjálfun til starfs / nám). Í því felst að
- FA er ábyrgt fyrir því að lýsing verkefnis / náms fyrir námskrána uppfylli kröfur til námskrár FA. Í því felst FA skal staðfesta námslýsingu þegar hún uppfyllir kröfur sem tilsvarandi námskrá gerir. Þá birtir FA námslýsingu á vef sínum undir námskrá sem við á.
- Lýsing vinnustofu/hvers verkefnis byggir á námskránni Smiðja 1 – 2, 2 Færni á vinnumarkaði og er þannig merkt.
- Heildar vinnuframlag nema samkvæmt námskránni er 180 klukkustundir. Námið skiptist í sex námsþætti.

Með smiðju er fyrst og fremst leitast við að byggja upp og styrkja þekkingu á og verklega hæfni í tilteknum störfum en einnig aðra mikilvæga þætti eins og samskiptafærni, réttindi og skyldur sem felast í starfi. Helstu áhersluatriði eru hagnýt viðfangsefni af ýmsum toga. Nemar læra og þjálfast í að vinna verkin svo haganlega sem lagt er upp með (kennt er) auk þess að leggja sig fram um að tímaáætlun standist þar sem við á.
Í námskránni er gert ráð fyrir um 110 klukkustunda viðbótar vinnuframlagi nema. Hátt hlutfall viðbótar vinnuframlags nema byggir einkum á fjölda klukkustunda í vinnustaðanámi.
Námsþættir smiðjunnar eru teknir fyrir í þeirri röð sem þeir koma fyrir í námskránni, eða að einhverju marki samhliða út frá númerum og tillögum sem koma fram undir forkröfur í hverjum námsþætti.

Grunnupplýsingar

Inntökuskilyrði: Fullorðið fólk 18 ára eða eldra sem á stutta skólagöngu að baki í formlegu skólakerfi og vill undirbúa sig fyrir ákveðið starf samkvæmt námslýsingu við þessa námskrá.
Skipulag: Viðurkenndur fræðsluaðili ber ábyrgð á framkvæmd námsins og skipar verkefnastjóra sem hefur umsjón með náminu, nemendahópnum, leiðbeinendum og allri framkvæmd. Mikilvægt er að leiðbeinendur séu í reglulegu sambandi og samstarfi við vinnustaði nemanna.
Verkefnastjóri sér til þess að námsþættir séu samþættir eins og kostur er og í rökréttu samhengi, ber ábyrgð á þjónustu við þátttakendur í tengslum við fyrirkomulag náms. Einnig að leiðbeinendur skili og kynni nemendum kennsluáætlun hvers námsþáttar. Áhersla er á að leiðbeinendur noti fjölbreyttar kennsluaðferðir sem henta námshópnum, beiti samþættingu og leitist við að nota hversdagsleg viðfangsefni í innlögn og þjálfun tengd starfi og þeirri vinnu sem er framundan hjá nemum. Miðað er við að þjálfun á vinnustað fari fram að loknum fyrsta námsþætti og jafnvel samhliða öðrum námsþætti til að styðja við yfirfærslu náms eins og kostur er.
Námsmat: Námsárangur og námsframvinda er metin út frá hæfniviðmiðum námsins með fjölbreyttum matsaðferðum sem fræðsluaðili samþykkir og lýst er í kennsluáætlun.
Við mat á hæfni skoðast þátttaka nema og áhersla lögð á að leiðbeinandi og nemar fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist og hvernig nemum gangi að ná hæfniviðmiðum námsins. Nemar þurfa að standast hæfniviðmið náms til að ljúka námi. Námsmat nýtist sem staðfesting á námsárangri og jafnframt sem lærdómur, hvatning og endurgjöf á námstímanum.
Starfsnám: Hluti náms er vinnustaðanám en námið er starfstengt með uppbyggingu og þjálfun til undirbúnings fyrir tiltekið starf og verkefni sem viðkomandi námslýsing námskrárinnar nær til.
Markhópar
  • einstaklingar með stutta skólagöngu að baki
  • einstaklingar sem vilja efla starfshæfni sína
  • einstaklingar sem búa við skerta möguleika til náms eða atvinnuþátttöku
  • einstaklingar með þörf fyrir að afla viðurkenningar á gildi náms sem fellur utan hins formlega framhaldsskóla- og háskólakerfis
Hæfni-, þekkingar- og leikniviðmið
  • Nemi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
  • - að nota algengt mál tengt verklagi í starfinu
  • - eigin heilsueflingu og viðhorfi til vinnu.
  • - virkni og eiginleikum búnaðar og áhalda í vinnu, ef við á
  • - reglum og leiðbeiningum sem gilda á vinnustað
  • - fyrirmælum um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti starfsfólks
  • - mikilvægi samvinnu og jákvæðra viðhorfa til vinnu og breytinga
  • - notkun verkdagbókar.
  • Nemi skal, með stuðningi ef þarf, hafa öðlast leikni í að:
  • - fylgja reglum á vinnustað
  • - vinna samkvæmt leiðbeiningum leiðsagnar á vinnustað
  • - nota viðeigandi efni í samræmi við leiðbeiningar, ef við á
  • - nota viðeigandi búnað og áhöld
  • - fylgja öryggisreglum í samræmi við fyrirmæli
  • - nota algengt mál sem tengist vinnunni.
  • Nemi skal, með stuðningi ef þarf, geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem aflað hefur verið til að:
  • - fylgja reglum á vinnustað
  • - vinna samkvæmt leiðbeiningum leiðsagnar á vinnustað
  • - gera ráðstafanir til að tryggja öryggi sitt
  • - vinna verkefni í samstarfi við samstarfsfólk
  • - sýna þjónustulipurð við viðskiptavini, ef við á.


Nemendastundir Fjöldi klukkustunda til að ljúka námskrá

180  klst.

Kjarni Námsþættir í námskrá


Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Vinnustundir
Credits Percentage
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir námsþættir sem hægt er að velja/meta í námskránni

Nei, frjálst val er ekki leyft

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
Námshæfni:
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
Menntun til sjálfbærni:
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
Heilbrigði:
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
Lýðræði og mannréttindi:
Jafnrétti: