afgreiðsla, innra skipulag, lok mála, skráning upplýsinga, starfsumhverfi, þjónustubeiðnir
Samþykkt af fræðsluaðila
1
10
Tilgangur námsþáttarins er að þjálfa verklag við móttöku, skráningu og afgreiðslu þjónustubeiðna. Unnið er með stofnun beiðna fyrir verkefni samkvæmt verklagsreglum, hvernig verkefnum er fylgt eftir allt til enda með áherslu á nákvæmni, gæði og innra skipulag fyrirtækja. Verklag er þjálfað og mat er lagt á beiðnir með tilliti til innihalds þar sem metið er hvort hægt sé að leysa mál strax eða hvort vísa eigi erindum áfram til annarra sérhæfðari starfsmanna. Jafnframt er lögð áhersla á hæfni námsmanna í að vinna með öðrum sem og hæfni þeirra til að vinna skipulega og af heilindum í samræmi við verklagsreglur. Jafnframt er almenn kynning á atvinnugreininni og hlutverki hennar í samfélaginu þar sem fjallað er um stöðu fyrirtækja, sérstöðu þeirra og samkeppni.
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Formlegu skipulagi vinnustaðar, verkferlum, verklagi, siðareglum og gildum.
Lögum og reglum sem gilda um meðferð persónuupplýsinga.
Innra og ytra starfsumhverfi fyrirtækisins.
Markhópi/viðskiptavinahópi fyrirtækisins.
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
Skrá þjónustubeiðnir, af nákvæmni, samkvæmt verklagsreglum.
Skrifa stuttan hnitmiðaðan texta.
Nota helstu forrit og upplýsingakerfi fyrirtækisins.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Taka á móti þjónustubeiðnum, meta hvenær beina skuli erindum áfram og fylgja málum allt til loka.
Vinna af nákvæmni og fylgja fyrirmælum við öflun upplýsinga í tengslum við móttöku og afgreiðslu þjónustubeiðna.
Miðla einföldum upplýsingum á skýran hátt til viðskiptavina og samstarfsfólks.
Nýta upplýsingatækni til að leysa algeng verkefni.
Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í starfaprófíl eru lögð til grundvallar við námsmat: Ritunarfærni, Natni og nákvæmni, Notkun upplýsingatækni, Skilningur á starfseminni og Þekking á starfsumhverfinu. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Samvinna, Söfnun og úrvinnsla upplýsinga, Skipulag og áætlanir og Vinnusiðferði og gildi.