Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1454505426.06

    Samskipti við viðskiptavini
    F-TÆÞJ2SV
    1
    Tækniþjónusta
    Samskipti, framkoma, álag í starfi, þjónusta
    Samþykkt af fræðsluaðila
    2
    10
    Tilgangur námsþáttarins er að þjálfa námsmenn í samskiptum, framkomu og þjónustu við mismunandi viðskiptavini. Kynnt eru helstu hugtök í þjónustu og hvað felst í góðri þjónustu. Lögð er áhersla á að þjálfa hæfni í samskiptum, að efla sjálfstraust námsmanna og hæfni námsmanna til að laga sig að þeim aðstæðum sem upp geta komið við móttöku og afgreiðslu þjónustubeiðna. Fjallað er um leiðir til að takast á við álag og viðbrögð í erfiðum aðstæðum. Þá er einnig lögð áhersla á að aðlagast aðstæðum í síbreytilegu starfsumhverfi.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mismunandi samskiptaaðferðum.
    • Hvað felst í góðri þjónustu.
    • Áhrifum sjálfstrausts á eigin frammistöðu.
    • Áhrifum staðalmynda á eigin viðhorf og skoðanir.
    • Algengum streituvöldum og viðbrögðum við þeim.
    • Þjónustustefnu fyrirtækisins.
    • Mikilvægi aðlögunarhæfni í breytilegu starfsumhverfi.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Beita mismunandi samskiptaaðferðum.
    • Eiga jákvæð samskipti við viðskiptavini.
    • Bregðast við á viðeigandi hátt, jafnvel í erfiðum aðstæðum.
    • Setja sig í spor annarra og virða ólík sjónarmið.
    • Hlusta af athygli og lesa í líkamstjáningu/raddblæ viðmælanda.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Laga tjáskipti sín við viðskiptavini að aðstæðum hverju sinni.
    • Sýna sjálfstraust í daglegum störfum sínum og hafa raunsæja trú á eigin getu.
    • Vinna á skilvirkan hátt undir álagi og takast á við tímabundnar streituvaldandi aðstæður.
    • Koma fram af heilindum og virðingu við alla viðskiptavini og samstarfsfólk.
    • Veita framúrskarandi þjónustu í samræmi við markmið fyrirtækis.
    • Laga sig að aðstæðum sem koma upp í starfinu.
    • Vinna sem hluti af heild við að þjónusta viðskiptavini.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í starfaprófíl eru lögð til grundvallar við námsmat: Sjálfstraust, Að vinna undir álagi, Viðskiptavinurinn í brennidepli, Þrautseigja/Seigla, Aðlögunarhæfni og Árangursrík samskipti. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Jafnréttisvitund og Vinnusiðferði og gildi.