Tilgangur þessa námsþáttar er að námsmaður kynnist algengum vél- og hugbúnaði í tölvum. Farið er í notkun búnaðar, samsetningu tölva og virkni. Námsmenn kynnast algengum stýrikerfum og þjónustu við þau. Námsmenn fá einnig þjálfun í notkun, viðhaldi og umgengni á öðrum tæknibúnaði eftir atvikum. Að námi loknu á námsmaður að geta framkvæmt algengustu stillingar og uppfærslur á vél – og hugbúnaði, ásamt því að framkvæma einfalda villu- og bilanaleit. Áhersla er lögð á að námsmenn séu í stakk búnir að viðhalda þekkingu sinni.
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Virkni og samsetningu algengs vélbúnaðar, íhluta og jaðartækja.
Virkni og uppsetningu algengs hugbúnaðar/stýrikerfa.
Aðferðum við villu- og bilanaleit.
Hvar hægt sé að leita upplýsinga um umgengni, viðhald og notkun á tæknibúnaði.
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
Setja upp algengan tæknibúnað og tengingar í samræmi við verksvið.
Greina einfaldar, algengar bilanir og villur í vélbúnaði og stýrikerfum í samræmi við verksvið.
Lagfæra einfaldar bilanir í tæknibúnaði í samræmi við verksvið.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Forgangsraða verkefnum.
Meta árangur og skilvirkni úrlausna eftir framkvæmd verkefnis.
Nýta upplýsingatæki til að viðhalda þekkingu sinni og afla og miðla upplýsingum.
Leita lausna og vinna af skilvirkni við krefjandi aðstæður.
Greina og taka á eigin þörf fyrir símenntun.
Sýna vandvirkni og nákvæmni og nota verðmæti á hagkvæman hátt.
Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í starfaprófíl eru lögð til grundvallar við námsmat: Sjálfstraust, Að vinna að lausnum, Natni og nákvæmni, Vöruþekking, Þrautseigja/Seigla, Notkun upplýsingatækni og Starfsþróun og færniefling. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþáttinn: Ábyrg nýting.