Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1454507446.32

    Netkerfi
    F-TÆÞJ2NK
    3
    Tækniþjónusta
    Netkerfi, bilanaleit, prófanir., viðhald
    Samþykkt af fræðsluaðila
    2
    30
    Tilgangur þessa námsþáttar er að námsmaður öðlist staðgóða þekkingu á netkerfum þannig að hann þekki eiginleika þeirra. Farið er í uppsetningu, stillingar, bilanaleit og viðhald grunnnetkerfa. Fjallað er um samskipta- og tengistaðla, mismunandi kapla og annan netbúnað. Þjálfuð er færni í að setja upp einföld netkerfi, nota algengar stillingar og gera prófanir til að kanna virkni þeirra. Áhersla er lögð á að námsmenn séu í stakk búnir að viðhalda þekkingu sinni.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Eiginleikum netkerfa.
    • Netbúnaði og tengimöguleikum.
    • Aðferðum við villu- og bilanaleit í netkerfum
    • Hvar hægt sé að leita upplýsinga um umgengni, viðhald og notkun á netbúnaði.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja upp einfaldar nettengingar í samræmi við verksvið.
    • Greina einfaldar algengar bilanir í netkerfum.
    • Framkvæma algengar stillingar og lagfæringar/breytingar á netkerfum í samræmi við verksvið.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Forgangsraða verkefnum.
    • Meta árangur og skilvirkni úrlausna eftir framkvæmd verkefnis.
    • Nýta upplýsingatæki til að viðhalda þekkingu sinni og afla og miðla upplýsingum.
    • Leita lausna og vinna af skilvirkni við krefjandi aðstæður.
    • Greina og taka á eigin þörf fyrir símenntun.
    • Sýna vandvirkni og nákvæmni og nota verðmæti á hagkvæman hátt.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í starfaprófíl eru lögð til grundvallar við námsmat: Sjálfstraust, Að vinna að lausnum, Natni og nákvæmni, Vöruþekking, Þrautseigja/seigla og Notkun upplýsingatækni. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Ábyrg nýting og Starfsþróun og færniefling.