Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1454508153.41

    Greining tæknilegra vandamála og bilana
    F-TÆÞJ2VB
    4
    Tækniþjónusta
    Bilanagreining, bilanaskráning, tæknileg vandamál, vinnubrögð, vörur og þjónusta.
    Samþykkt af fræðsluaðila
    2
    10
    Tilgangur námsþáttarins er að námsmenn þjálfist í bilanagreiningu. Námsmenn þjálfa vinnubrögð við að greina vandamál viðskiptavina við notkun þeirra á tæknibúnaði og hvar hugsanleg bilun liggur. Farið er í leiðir til að afla áreiðanlegra upplýsinga frá viðskiptavinum á jákvæðan og árangursríkan hátt og að greina á milli auka- og aðalatriða í bilanalýsingum. Þjálfuð er bilanaskráning, leit í gagnagrunnum að fordæmum og ákvarðanataka varðandi verkferla (gera sjálfur/vísa áfram).
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Vörum og þjónustuframboði fyrirtækisins.
    • Verkferlum við bilanagreiningu.
    • Bilanaskráningu.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Afla upplýsinga um tæknivandamál frá viðskiptavinum.
    • Skrá bilanir samkvæmt verkferlum.
    • Leita í gagnagrunnum að fordæmum.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Greina þarfir viðskiptavina og koma til móts við þær með því að nota vöruþekkingu sína.
    • Greina einfaldar bilanir/villur sem orsakast af nokkrum algengum atriðum.
    • Greina milli aðal- og aukaatriða í bilanalýsingum.
    • Velja ákjósanlega lausn eftir að hafa vegið og metið kosti og galla.
    • Leysa algeng verkefni með hjálp upplýsingatækninnar.
    • Vinna sjálfstætt í samræmi við verksvið.
    • Fara yfir eigin verk og meta nákvæmni og frágang.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í starfaprófíl eru lögð til grundvallar við námsmat: Að vinna að lausnum, Natni og nákvæmni, Vöruþekking og Notkun upplýsingatækni. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Ábyrg nýting, Mat og lausnir, Söfnun og úrvinnsla upplýsinga og Starfsþróun og færniefling.