Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1454509079.28

    Ráðgjöf og leiðsögn
    F-TÆÞJ2RL
    5
    Tækniþjónusta
    Ráðgjöf, almenn notkun hugbúnaðar/vélbúnaðar, leiðsögn, þjónusta.
    Samþykkt af fræðsluaðila
    2
    10
    Tilgangur þessa námsþáttar er að gera námsmanninn hæfan í að leiðbeina viðskipavinum um notkun á tæknibúnaði sem fyrirtækið þjónustar og veita almennar upplýsingar um virkni hans. Námsmaður þjálfast í að aðstoða viðskiptavini í gegnum síma eða á staðnum. Lögð er áhersla á þjónustu við viðskiptavininn þannig að hann fái úrlausn vandans. Námsmaður lærir að nýta sér þekkingu á vörum, verkferlum og starfsemi fyrirtækisins í þessum tilgangi. Jafnframt er fjallað um hvernig takast eigi við álag í starfinu. Lögð er áhersla á þolinmæði og tillitssemi þegar kemur að ráðgjöf og leiðsögn til viðskiptavina.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Vörum og þjónustu sem eru í boði hjá fyrirtækinu.
    • Þörfum og forsendum viðskiptavina.
    • Viðeigandi framkomu/framsetningu.
    • Persónulegum streituvöldum.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Gefa ráð og leiðbeiningar á yfirvegaðan og viðeigandi hátt.
    • Meta þarfir og forsendur viðskiptavina.
    • Fara eftir ferlum og ákveðnu verklagi.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leiðbeina viðskiptavinum, til dæmis vegna tenginga eða uppsetninga.
    • Veita viðskipavinum ráðgjöf eða fræðslu um tæknibúnað og notkun hans.
    • Nýta vöruþekkingu til að mæta þörfum viðskiptavina.
    • Nýta námstækifæri sem leynast í daglegum störfum.
    • Vinna af skilvirkni í krefjandi aðstæðum.
    • Sýna í verki skilning á siðareglum og gildum vinnustaðarins.
    • Nýta verðmæti á hagkvæman hátt.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í starfaprófíl eru lögð til grundvallar við námsmat: Að vinna að lausnum, Viðskiptavinurinn í brennidepli, Vöruþekking, Þrautseigja/Seigla, Þekking á starfsumhverfinu og Árangursrík samskipti. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Jafnréttisvitund og Starfsþróun og færniefling.