Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1454510067.44

    Tæknileg aðstoð/viðgerðir
    F-TÆÞJ2TA
    6
    Tækniþjónusta
    Almenn tækniþjónusta, almenn notkun hugbúnaðar/vélbúnaðar, bilanir., vinnustöð notenda
    Samþykkt af fræðsluaðila
    2
    10
    Tilgangur námsþáttarins er að námsmenn þjálfist í að lagfæra bilanir og leysa tæknileg vandamál viðskiptavina bæði í fjarvinnslu og með því að fara á staðinn. Farið er í hvernig yfirtaka á vinnustöð notenda og þær reglur sem um það gilda. Þjálfaðar eru algengar aðgerðir til dæmis stofnun notenda, uppsetning prentara, endursetning lykilorða og stofnun pósthólfs. Tekin verða dæmi um verkefni sem geta falist í starfinu varðandi viðhald og uppsetningu búnaðar á vinnustöð notandans.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Algengustu tæknivandamálum viðskiptavina fyrirtækisins.
    • Reglum um gagnaöryggi og meðferð persónuupplýsinga.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Veita góða og snögga þjónustu.
    • Fara eftir ferlum og skilgreindu verklagi.
    • Yfirtaka vinnustöð notenda í samræmi við verksvið.
    • Framkvæma algengar aðgerðir í fjarvinnu og á staðnum, svo sem stofnun notenda, uppsetning, prentara og fleira.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leysa úr algengum tæknilegum vandamálum viðskiptavina.
    • Veit almenna tækniþjónustu og viðgerðir.
    • Tryggja að viðeigandi þjónusta sé veitt.
    • Nýta námstækifæri sem leynast í daglegum störfum.
    • Sýna í verki skilning á siðareglum og gildum vinnustaðarins.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í starfaprófíl eru lögð til grundvallar við námsmat: Að vinna að lausnum, Viðskiptavinurinn í brennidepli, Vöruþekking, Þrautseigja/Seigla og Þekking á starfsumhverfinu. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Árangursrík samskipti, Jafnréttisvitund og Starfsþróun og færniefling.