Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1454510540.3

    Tækniþjónusta – þjálfun á vinnustað
    F-TÆÞJ2VÞ
    7
    Tækniþjónusta
    Verkþjálfun
    Samþykkt af fræðsluaðila
    2
    30
    Námið fer fram á vinnustað námsmanns eða annars staðar þar sem veitt er tækniþjónusta fyrir ytri eða innri viðskiptavini. Námsþættinum er ætlað að tryggja að námsmaður fái verklega þjálfun við raunhæfar aðstæður. Leggja skal áherslu á að námsmaður kynnist öllum verkþáttum sem koma fram í starfaprófíl og sem þessi námsskrá tekur á, það er móttaka þjónustubeiðna, greining vandamála, ráðgjöf, úrlausn og eftirfylgni.
    Að námsmaður hafi lokið við aðra námþætti sem lýst er í þessari námsskrá.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Mikilvægi nákvæmrar bilanaskráningar.
    • Uppbyggingu og notkun netkerfa og tækja.
    • Virkni algengra forrita sem notuð eru.
    • Mikilvægi jákvæðra samskipta.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja upp algengan tæknibúnað (hugbúnað, vélbúnað og netkerfi).
    • Bilanagreina algengan tæknibúnað (hugbúnað, vélbúnað og netkerfi).
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Vinna sjálfstætt og skipuleggja verk sín samkvæmt verksviði.
    • Greina tæknileg vandamál hratt og örugglega.
    • Leysa algeng tæknileg vandamál.
    • Veita einfalda ráðgjöf um notkun tæknibúnaðar.
    • Halda skrá yfir öll verkefni sem hann innir af hendi.
    • Eiga góð samskipti við viðskiptavini og viðhalda trausti þeirra.
    Lögð er áhersla á mat á hæfni við raunhæfar aðstæður og að verkefni starfsins, eins og þeim er lýst í starfaprófíl séu lögð til grundvallar. Við mat á hæfni má notast við spurningar eins og: - Hefur námsmaður verið í aðstæðum þar sem reyndi á þessa hæfni? - Hvert var framlag námsmannsins við slíkar aðstæður? - Hvernig leysti námsmaður úr verkefninu?