Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1458565305.84

    Markmiðasetning og sjálfsefling
    F-MASE1MS
    1
    Markmiðasetning
    aðlögunarhæfni, fordómar, færniefling, mat og lausnir, persónuleg markmiðasetning, sjálfsefling, starfsþróun, valdefling
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    60
    Tilgangur námsþáttarins er að efla sjálfstraust námsmanna og auka færni þeirra í að setja og ná markmiðum í lífi sínu og starfi. Í upphafi námsþáttarins er megináhersla lögð á sjálfsskoðun, gerð færnimöppu og ferilskrár, persónulega markmiðasetningu og aðlögunarhæfni. Litið er inn á við til að kalla fram vonir, drauma og væntingar en einnig metið hvaða fyrirstöður eða hindranir geti hamlað velgengni. Þá gera námsmenn áætlun um þróun að loknu námi, setja skammtímamarkmið og langtímamarkmið út frá eigin framtíðarsýn þar sem fjallað er um leiðir til að gera hana að verkuleika. Fjallað er um ýmsa þætti sem hafa áhrif á markmið og árangur svo sem sjálfsöryggi, fordóma, tímastjórnun, framkomu, fjármál, heimilisbókhald, upplýsingaleit, góðar venjur við netnotkun og samskipti á netinu.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu þáttum sem hafa áhrif á sjálfstraust.
    • Samhengi milli sjálfseflingar og framkomu.
    • Aðferðum til að greina eigið áhugasvið.
    • Aðferðum við að setja sér raunhæf markmið.
    • Hindrunum sem hafa áhrif á markmið og árangur.
    • Mikilvægi góðrar ferilsskrá þegar sótt er um starf eða skólavist.
    • Mikilvægi ábyrgrar netnotkunar.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja markmið og gera áætlanir.
    • Sýna sjálfsöryggi í framkomu.
    • Safna gögnum um reynslu og færni sem skráð er í færnimöppu.
    • Lesa stutta texta til að finna ákveðnar upplýsingar.
    • Leysa vandamál sem hindra árangur.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Viðhalda nægilegu sjálfstrausti til að setja sér markmið fyrir framtíðina.
    • Tileinka sér að vinna eftir markmiðum til að ná árangri.
    • Öðlast sjálfsöryggi til að sýna öðrum hvert hugurinn stefnir.
    • Útskýra eigin hegðun og tilfinningar.
    • Hrinda úr vegi hindrunum sem hamla eigin velgengni.
    • Tileinka sér ábyrga netnotkun.
    • Ígrunda eigin verk og skilgreina það sem gekk vel, hvað hefði mátt betur fara og hvernig megi bæta eigin frammistöðu.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í skilgreiningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á almennri starfshæfni á 1. þrepi má leggja til grundvallar við námsmat: Skipulag og áætlanir, Söfnun og úrvinnsla upplýsinga, Ábyrg nýting, Mat og lausnir og Starfsþróun og færniefling. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Sjálfstraust, Sjálfsstjórn og Ákvarðanataka.