Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1458566593.55

    Samskipti og samstarf
    F-SASK1ÁR
    3
    Samskipti
    aðlögunarhæfni, fjölmenning, framkoma, jafnréttisvitund, streituvaldar, traust, árangursrík samskipti
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    40
    Tilgangur námsþáttarins er að efla færni námsmanna í árangursríkum og heiðarlegum samskiptum ásamt því að takast á við áskoranir. Einnig er áhersla lögð á mikilvægi góðs liðsanda, samskipta- og forystuhæfni, samvinnu í lausnum vandamála, ákvarðanatöku, sköpunargleði, rökhugsun og traust. Fjallað er um streituvalda og viðbrögð við streitu, bæði í vinnu og einkalífi. Fjallað er um samskipti á vinnustað og leiðir til að bæta þau auk þess sem farið er yfir tengsl vinnu og einkalífs, mótlæti, vímuefnaneyslu, geðræn vandamál, einelti, áföll og kynferðislegt áreiti. Fjallað er um erfiðleika samfara langvarandi atvinnuleysi og hvert best er að snúa sér ef þörf er á aðstoð. Hvatt er til vitundarvakningar um mikilvægi heilsusamlegs lífernis, bæði hvað varðar næringu og hreyfingu.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Aðferðum sem stuðla að árangursríkum samskiptum.
    • Eigin styrkleikum og veikleikum í samskiptum.
    • Helstu streituvöldum sem hafa áhrif á samskipti og sjálfstraust.
    • Undirstöðuatriðum tjáskipta og hvernig hægt er að forðast misskilning.
    • Aðferðum við að leysa ágreining.
    • Fjölbreytileika mannlífs og eigin fordómum.
    • Mikilvægi áhrifa samvinnu og samkenndar í árangri liðsheilda.
    • Mikilvægi heilsusamlegs lífernis.
    • Mikilvægi þess að skapa traust og virðingu innan hóps.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota ýmsar aðferðir í samskiptum.
    • Bregðast við vandamálum af ábyrgð og sjálfsöryggi.
    • Ræða um vandamál tengd vinnu eða einkalífi.
    • Hlusta á fordómalausan hátt.
    • Tjá sig heiðarlega, með virðingu og nærgætni.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Taka þátt í opinskáum umræðum og benda á leiðir til að leysa vandamál.
    • Skilja og viðurkenna gildi annarra sjónarmiða og hugmynda um hvernig á að gera hlutina.
    • Leita eftir mismunandi skoðunum og viðhorfum og meta þau út frá staðreyndum.
    • Aðlaga framkomu sína að ólíkum einstaklingum og hópum við mismunandi aðstæður.
    • Setja upplýsingar og staðreyndir fram á skýran hátt með viðeigandi orðalagi.
    • Deila upplýsingum fúslega þegar þær geta komið að notum.
    • Sýna umburðarlyndi.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í skilgreiningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á almennri starfshæfni á 1. þrepi má leggja til grundvallar við námsmat: Árangursrík samskipti, Samvinna, Aðlögunarhæfni og Jafnréttisvitund. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Að vinna undir álagi, Fjölmenningarfærni og Úrlausn ágreinings.