Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1459422558.81

    Vinnuumhverfi og vinnustaðir
    F-VIUM1VR
    2
    Vinnuumhverfi
    atvinnuleit, reglur, skipulag og áætlanir, vinnusiðferði og gildi, vinnustaðamenning, öryggisvitund
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    40
    Tilgangur námsþáttarins er að kynna vinnuumhverfi, vinnustaðamenningu, réttindi og skyldur, vinnusiðferði og gildi, reglur og verkferla sem almennt tíðkast á vinnustöðum og styrkja þannig starfshæfni námsmanna. Fjallað er um reglur er varða mætingu, framkomu og hegðun á vinnustöðum og vinnusiðferði almennt. Jafnframt er lögð áhersla á hæfni til að vinna í hópi og að tileinka sér jákvætt viðhorf til vinnustaða. Farið er í vettvangsheimsóknir og aðferðir þjálfaðar í hópastarfi og með umræðum. Námsmenn velja sér starfssvið fyrir vettvangsnámið út frá áhugasviði og reynslu. Fjallað er um atvinnuleit og ráðgjöf vegna atvinnuviðtala. Vinnumiðlanir eru kynntar svo og hvar hægt er að finna upplýsingar um laus störf. Einnig eru kynntir ýmsir möguleikar á skiptinámi og sjálfboðastörfum erlendis.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Reglum um mætingu og framkomu og siðareglur á vinnustöðum.
    • Reglum um öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum.
    • Réttindum og skyldum á vinnumarkaði.
    • Því úrvali af námi og störfum sem í boði er á svæðinu.
    • Námsframboði og sjálfboðaliðastarfi hérlendis og erlendis.
    • Því hvers megi vænta í atvinnuviðtali.
    • Markvissum leiðum til að fylgjast með atvinnuauglýsingum.
    • Því hvar sé helst að finna upplýsingar um laus störf.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skoða valkosti í námi og störfum hérlendis og erlendis.
    • Meta kostnað ef farið er í sjálfboðastörf.
    • Vera virkur í atvinnuleit.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Tileinka sér skipulögð vinnubrögð og jákvætt viðhorf til starfa.
    • Auki færni sína til að móta gott andrúmsloft á vinnustað.
    • Geta unnið sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar.
    • Fylgja reglum um hollustu og öryggi á vinnustað.
    • Finna og taka mið af viðeigandi gögnum við lausn viðfangsefna.
    • Sýna dómgreind í álitamálum er varða vinnusiðferði.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir eftirfarandi hæfniþætti í skilgreiningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á almennri starfshæfni á 1. þrepi má leggja til grundvallar við námsmat: Skipulag og áætlanir, Öryggisvitund, Vinnusiðferði og gildi og Starfsþróun og færniefling. Einnig má hafa til hliðsjónar hæfniþættina: Að vinna að lausnum, Frumkvæði, Gæðavitund, Natni og nákvæmni og Skilningur á starfseminni.