Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1459422743.36

    Vettvangsnám á vinnustað
    F-STSH1ÞÚ
    10
    Sértæk starfshæfni
    aðlögunarhæfni, söfnun og úrvinnsla upplýsinga, öryggisvitund, þjálfun
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    40
    Tilgangur þessa námshluta er að styðja við yfirfærslu náms á vinnustað og þjálfa þá þekkingu, leikni og hæfni sem byggð hefur verið upp í náminu. Þjálfunin fer fram með leiðsögn þar sem þjálfuð eru vinnubrögð og aðferðir við algeng verkefni á vinnustaðnum. Val á vinnustað fer fram í námsþættinum Vinnuumhverfi og vinnustaðir.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Stefnu, reglum og menningu á vinnustað.
    • Verkferlum og skipulagi á vinnustaðnum.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Vinna sjálfstætt eftir skipulagi vinnustaðar.
    • Vinna í samræmi við öryggis-, hreinlætis- og gæðakröfur.
    • Eiga árangursrík samskipti við samstarfsfólk og viðskiptavini.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Sýna góða starfshætti í samræmi við stefnu vinnustaðar.
    • Fylgja fyrirfram ákveðnum verkferlum og reglum á vinnustað.
    • Leysa algeng verkefni á vinnustað með fullnægjandi hætti.
    • Leggja sitt af mörkum til að auka árangur.
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Viðmið fyrir alla hæfniþætti samkvæmt skilgreiningu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins í almennri starfshæfni á 1. þrepi má leggja til grundvallar við námsmat: Aðlögunarhæfni, Ábyrg nýting, Árangursrík samskipti, Jafnréttisvitund, Mat og lausnir, Samvinna, Skipulag og áætlanir, Starfsþróun og færniefling, Söfnun og úrvinnsla upplýsinga, Vinnusiðferði og gildi og Öryggisvitund. Einnig má hafa til hliðsjónar aðra hæfniþætti á 1. þrepi í samræmi við verkefni á vinnustað.