Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1601385780.97

    Námstækni og færniefling A
    F-NAFL1GN
    1
    Námstækni og færniefling A
    Grunnatriði í námstækni s.s. lestraraðferðir, færnimappa., hugkortagerð og glósutækni, minnistækni
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    15
    Tilgangur námsþáttarins er að hver nemi nái að tileinka sér leiðir til að læra og tileinka sér grunnatriði skipulegra vinnubragða. Þjálfun í að gera færnimöppu um eigin starfs- og námstengda færni ásamt því að skrá áunnin réttindi og skírteini sem aflað hefur verið. Grunnþjálfun í aðferðum til að skipuleggja eigin vinnubrögð. Grunnur lagður að kynningarbréfi vegna náms- og/eða starfsumsókna. Viðfangsefni námsþáttarins fléttast inn í alla aðra námsþætti námskrárinnar.
    Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi jákvæðs sjálfsmats
    • aukinni vellíðan sem aukin eigin geta skapar
    • áhrifaþáttum sem draga úr eða auka sjálfstraust.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • sýna jákvæð viðbrögð við ólíkar aðstæður
    • setja sig í spor annarra
    • endurmeta trú á eigin getu.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • trúa á eigin getu
    • vinna með öðrum
    • átta sig á eigin veikleikum og styrkleikum.
    Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema.