Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1601386253.65

    Námstækni og færniefling B
    F-NAFG1NL
    1
    Námstækni og færniefling B
    Námstækni, að setja sér markmið, ferilskrá, kynningarbréf og uppfærsla færnimappa., lestraraðferðir, skipulögð vinnubrögð
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    10
    Tilgangur námsþáttarins er að nemi þjálfist í að læra og skapi sér námsstíl. Gera/uppfæra færnimöppu sem lýsir eigin færni ásamt því að skrá áunnin réttindi og skírteini. Farið er í grunnatriði tímastjórnunar og þjálfun í að beita aðferðum til að skipuleggja eigin vinnubrögð og setja sér raunhæf markmið. Þá er þjálfun í uppbyggingu og framsetningu á ferilskrá og kynningarbréfi. Viðfangsefni námsþáttarins fléttast inn í alla námsþætti námskrárinnar.
    Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi námstækni og námsaðferðum
    • hvað þarf til að geta sett sér raunhæf markmið (í námi)
    • ólíkum lestraraðferðum
    • sjálfsaga og hugarfari gagnvart breytingum.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja vinnu sína við nám og störf
    • setja sér raunhæf markmið
    • gera samantekt um eigin færni
    • setja upp snyrtilega ferilskrá.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita sjálfsaga til að ná eftirsóttum árangri
    • gera kynningarbréf á nokkra mismunandi vegu
    • nýta mögulegar bjargir til að efla námstækni sína
    • nýta mögulegar bjargir til að styrkja persónulega færni.
    Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema.