Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1601387132.48

    Sjálfstyrking og samskipti A
    F-SJSA1ES
    1
    Sjálfstyrking og samskipti
    Efla sjálfstraust, samskiptatækni, sjálfsagi, styrkleikar, vellíðan., vinnustaða-/skólamenning, örugg framkoma
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    15
    Tilgangur námsþáttarins er að efla skilning á mikilvægi sjálfsvirðingar og sjálfstrausts með áherslu á að efla trú á eigin getu í mannlegum samskiptum og auka skilning á van- og ofmati á eigin ágæti. Stór hluti námsþáttarins fer í leikni til að hlusta og gagnrýna (jákvætt / neikvætt). Áhrif sjálfsaga á árangur og vellíðan. Farið er í hlutverkaleiki og sambærileg verkefni og þau nýtt til að leysa verkefni. Námsþátturinn er einkum verkefnamiðaður.
    Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi jákvæðs sjálfsmats
    • aukinni vellíðan sem aukin eigin geta skapar
    • áhrifaþáttum sem draga úr eða auka sjálfstraust.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • sýna jákvæð viðbrögð við ólíkar aðstæður
    • setja sig í spor annarra
    • endurmeta trú á eigin getu.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • trúa á eigin getu
    • vinna með öðrum
    • átta sig á eigin veikleikum og styrkleikum.
    Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema.