Tilgangur námsþáttarins er að efla öryggi í framkomu með áherslu á þjálfun í mannlegum samskiptum og mati á eigin ágæti. Rifjuð er upp leikni við að hlusta, gagnrýna og leiðir til að leysa ágreining. Töluvert um t.d. hlutverkaleik og sambærileg verkefni sem nýtt eru til að leysa verkefni. Fjallað er um sjálfstraust í líkamstjáningu og ákjósanleg viðbrögð fólks við bæði jákvæðri og neikvæðri gagnrýni (ekki bara hrósi og lasti). Rætt er hvernig við setjum fólki mörk, að geta sagt nei og geta beðist afsökunar, geta fyrirgefið og óskað eftir greiða frá kunnugum. Námsþátturinn er einkum verkefnamiðaður.
Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
gildi jákvæðs sjálfsmats
áhrifaþáttum gagnvart sjálfstrausti og vellíðan
gildi góðra samskipta á vinnustað.
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
sýna jákvæð viðbrögð við ólíkar aðstæður
hlusta á virkan hátt
tjá eigin skoðanir í hópi
nýta leiðir sjálfstyrkingar.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
trúa á eigin getu
vinna með öðrum
átta sig á eigin veikleikum og styrkleikum.
Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema.