Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1601388423.78

    Tölvu- og upplýsingatækni A
    F-TÖUP1AT
    3
    Tölvu- og upplýsingatækni
    (slæðugerð fyrir kynningu) netsiðir (netiquette) – umgengnisreglur á netinu, Almenn tölvunotkun, opinn hugbúnaður, ritvinnsla og fingrasetning, tölvupóstur (fagleg notkun, öryggisvitund)
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    40
    Tilgangur námsþáttarins er að efla færni námsmanna í almennri tölvunotkun með áherslu á opinn gjaldfrjálsan hugbúnað. Stuttlega er fjallað um virkni tölva og snjalltækja til að auka skilning á virkni tækja og öryggisvitund vegna vél- og hugbúnaðar. Þá er mikilvægi siðlegra samskipta á netinu (e. netiquette) tekið fyrir með lýsandi dæmum og æfingum um mörk og misskilning. Áhersla er á þjálfun fingrasetningar og að kenna hagnýta notkun tölvupósts og dagbókar, ritvinnslu og helstu miðla. Að auki er mikilvægt að æfa notkun hljóðnema, hlustunartækis og vefmyndavélar, einkum við rafræna fundi.
    Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi siðlegra samskipta á netinu (almennar umgengnisreglur)
    • mikilvægustu aðgerðum varðandi vélbúnaðinn
    • mikilvægum aðgerðum við hugbúnaðinn, t.d. að finna og ræsa, keyra eða vista forrit
    • algengum leitarforsendum leitarvéla
    • möppugerð, vistun skjala og prentun
    • helstu aðgerðum við notkun tölvupósts, dagbókar og ritvinnslu.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • ræsa/opna tölvu/snjalltæki með notandanafni og lykilorði auk þess að ganga frá tækinu
    • nota helstu jaðartæki með tölvu (t.d. síma og prentara)
    • ræsa forrit, nota algengar skipanir og ganga skipulega frá skjölum
    • nota vafra og leitarvélar í markvissum tilgangi
    • nota hljóðnema, hlustunartæki og vefmyndavél.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • opna, skrifa og senda tölvupóst með viðhengi
    • nota ritvinnslu til að opna, skrifa og vista skjal í möppu
    • taka þátt í (eiga) samskiptum á netinu, taka þátt í spjalli
    • finna og velja gagnleg hjálpargögn á netinu til notkunar í íslensku og erlendu tungumáli.
    Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema.