Fagleg færni, Office 365 sem heildarkerfi, kennd og æfð notkun hugkorta, m.a. hugkort og kynningarforrit, nýting ritvinnsluforrita, opinn hugbúnaður, skýjalausnir, töflureiknir í stærðfræði, þjálfun í t.d. Google docs
Samþykkt af fræðsluaðila
1
60
Tilgangur námsþáttar er áframhaldandi styrking á faglegri færni við notkun hugbúnaðar sem kynntur var í fyrri námsþætti og notkun Internetsins. Áhersla á þjálfun í notkun töflureiknis með samþættingu við stærðfræði og aðra námsþætti, þjálfun í að nýta ritvinnsluforrit á marga vegu. Kostir opins hugbúnaðar eru kynntir ítarlega og nemum gefinn kostur á að opna eða búa til aðgang að opnum hugbúnaði til að nýta hann, auk þjálfunar í grunnatriðum á t.d. Google docs. Þá er æfð framsetning á kynningarefni, t.d. með slæðum (ppt) og myndskeiðum (prezi) og kennd eru og æfð notkun hugkorta. Kynning á Office 365 sem heildarkerfi. Farið er í notkun á helstu forritum og einkenni og flokkar skýjalausna eru kynnt og notkun þeirra þjálfuð.
Tölvu- og upplýsingatækni A – mat fræðsluaðila
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að styrkja og auka við rafræna færni sína
helstu aðgerðum allra forrita sem kynnt og notuð eru
tengingu milli tölvupósts og dagbókar
framsetning gagna á myndrænu formi í töflureikni
skýjalausnum.
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
nota stílbrögð og innbyggð snið í forritum
flutningur og samhæfing gagna milli ritvinnslu og töflureiknis
sníða og brjóta um í forritum
nota helstu aðgerðir í tölvupóstforriti
skrifa rafrænan texta og tengja texta, mynd og hljóð eins og við á
vinna með skýjalausnir.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útbúa kynningu með bakgrunni, litum, ljósmyndum og teikningum
gera kynningu með ólíkum aðgerðum forritsins, tímastillt og með aðstoðartexta
nota töflureikni og önnur forrit sem æfð hafa verið, til að opna nýtt skjal, skrifa texta, reikna, útbúa ramma og prentsnið ásamt því að vista á ákveðinn stað í möppu
auka upplýsingalæsi og meðvitund um stöðugar breytingar í upplýsingatækni.
Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema.