Framsögn, aukinn orðaforði og tjáning, lestur, ritun
Samþykkt af fræðsluaðila
1
45
Tilgangur námsþáttarins er að nemar þjálfist í málfærni í ræðu og riti og efli þannig meðal annars sjálfstraust. Áhersla á að efla færni í lestri og ritun þar sem þjálfaður er lesskilningur, lestrarhraði og úthald við lestur. Unnið er með fjölbreytta texta á þægilegu máli og sjónum beint að ólíkri málnotkun eftir aðstæðum. Þá eru unnin ritunarverkefni í tengslum við grunnþætti stafsetningar og greinarmerkjasetningar. Bæði er unnið með frjálsa ritun til að styðja frumkvæði, málnotkun og sköpun en einnig eftir upplestri til að styrkja réttritun. Öll ritun tengist notkun ritvinnsluforrita og kynnt er og þjálfuð notkun á leiðréttingarforriti til að bæta og styðja eigin texta. Grunnatriði í meðferð heimilda eru kynnt og æfð.
Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi helstu þátta sem góð lestrarfærni veitir