Læsi, munnleg tjáning, orðaforði, ritun, samþætt ritvinnsla og hjálpargögn
Samþykkt af fræðsluaðila
1
60
Tilgangur námsþáttarins er að styrkja enn frekar lestraraðferðir og læsi í víðum skilningi, meðal annars með lestri viðameiri texta, ásamt því að námstækni fléttast inn í alla þætti til að efla námsvitund og sjálfstæði í námi. Þá er áhersla á að nemar æfist í samfélagslega gagnrýninni umfjöllun um ólík viðfangsefni og þjálfist áfram í notkun hjálpargagna við textagerð með ritvinnsluforriti. Fjallað er um grundvallaratriði í uppbyggingu og framsetningu ritsmíða og meðferð heimilda. Ritun er æfð markvisst með áherslu á að styrkja kunnáttu í stafsetningu og málfræði. Með samþættingu námstækni fá nemar auk þess þjálfun í gerð og framsetningu kynninga, umsóknar um atvinnu og ferilskrár.
Íslenska A – mat fræðsluaðila
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að tileinka sér árangursríkar aðferðir í eigin námi
nokkrum ólíkum tegundum bókmennta og nytjatexta
orðaforða umfram það sem tíðkast í talmáli
helstu atriðum sem einkenna góða framsögn
mikilvægi stafsetningar og málfræði við textaskrif.
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
greina inntak þess sem lesið er, sér til gagns og gamans
skrifa ólíkar gerðir texta
tjá sig munnlega og skriflega um umræðu- eða lesefni
taka saman stuttar endursagnir úr ritmáli
flytja eigið efni og annarra af ýmsum toga.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fjalla um inntak stuttra ritverka
greina einföld atriði í málfræði og stafsetningu
kynna og ræða eigin verk og annarra
nota viðeigandi hjálpargögn við frágang á eigin texta.
Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og endurgjöf fyrir hvert verkefni og leiðbeiningu við vinnslu verkefna.