Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1601392524.74

    Erlend tungumál A
    F-ETED1UL
    1
    Erlend tungumál A / enska / danska
    Upprifjun á grunnþáttum tungumáls, byggja upp þekkingu og færni með hlustun og lestri, tjáningu með tali og almennu orðalagi auk fjölbreyttra ritunaræfinga
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    45
    Upprifjun á grunnþáttum tungumálsins. Tilgangur námsþáttar er að byggja upp þekkingu og færni í notkun málsins svo að nemar geti skilið og talað lítillega um efni sem hefur verið æft. Skilningur á töluðu máli er þjálfaður með áherslu á hlustun og lestur einfaldra texta í tengslum við daglegt líf og lestur léttlestrarbókar og stuttra greina, til dæmis af vefmiðlum. Tjáning með tali er þjálfuð meðal annars með upplestri í tengslum við skilning og þjálfun á viðeigandi almennu orðalagi. Þá eru einnig fjölbreyttar æfingar í ritun með áherslu á réttritun og frjálsa ritun. Námsþátturinn er á stigi A-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
    Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • algengustu orðum málsins
    • grunnreglum í málfræði og ritun
    • einföldu almennu talmáli, s.s. í samtölum, hljóð- og myndmiðlum
    • algengum reglum um framburð orða.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa einfalda texta
    • skrifa einfaldan texta um þekkt efni með viðeigandi uppsetningu
    • taka þátt í einföldum samræðum um persónuleg málefni
    • byggja upp og bæta við eigin orðaforða með ýmsum aðferðum
    • hlusta eftir upplýsingum í samtali og tal- eða myndmiðlum.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita virkri hlustun
    • sýna skilning á inntaki tal- og myndmáls við úrlausn verkefna
    • beita grunnatriðum málfræði í ritun og tali
    • taka þátt í samtali á tungumálinu um efni sem fjallað er um hverju sinni.
    Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema.