Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1601457274.35

    Erlend tungumál B
    F-EBED1EA
    1
    Erlend tungumál B / enska / danska
    daglegt mál, lesskilningur, orðaforði, ritun., Áframhaldandi færniuppbygging
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    60
    Tilgangur námsþáttarins er að auka grunnfærni í tungumálinu svo nemar sjái hvernig færnin nýtist á ýmsan hátt. Mikilvægt er að auka læsi með æfingum í tengslum við orðaforða og lesskilning með áherslu á lestur fjölbreyttra texta á tungumálinu. Kynnt eru og þjálfuð hjálpargögn á borð við rafrænar orðabækur og leiðréttingaforrit fyrir ritað mál. Tjáning á daglegu máli er þjálfuð jöfnum höndum bæði munnlega og skriflega og undirstöðuatriði í málfræði fléttuð inn í allt efni námsþáttarins. Textarýni og túlkun eru þjálfuð, meðal annars með lestri greina og smásagna. Námsþátturinn er á stigi A-1/A-2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
    Erlend tungumál A (sama tungumál) eða sambærilegt – mat fræðsluaðila
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi þess að auka orðaforðann til að efla málskilning
    • helstu þáttum í málfræði tungumálsins
    • notkun helstu hjálpargagna við tungumálanám
    • algengustu framburðarreglum.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • tjá sig munnlega, í samfelldu máli, um persónuleg málefni, verslun, fjölskyldu og námsefni
    • skrifa einfaldan texta um þekkt efni
    • hlusta á og taka þátt í einföldum beinum samtölum
    • nýta rafrænar orðabækur og önnur stafræn hjálpargögn í tungumálanámi
    • lýsa mikilvægum þörfum á einfaldan hátt.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita helstu málfræðiatriðum í tali og ritun
    • rýna stutta frásagnartexta
    • afla sér einfaldra upplýsinga á mismunandi hátt
    • afla sér þekkingar á tilteknu efni og miðla því á einfaldan hátt.
    Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema.