Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1601458312.7

    Stærðfræði A
    F-STÆA1MT
    1
    Stærðfræði A
    forgangsröðun aðgerða, grunnaðgerðirnar fjórar, meðferð talna, prósentur og brot. Lagður grunnur að samþættingu við töflureikni í útreikningi verkefna.
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    40
    Tilgangur námsþáttarins er tvíþættur. Í fyrsta lagi meðferð talna og vinnubrögð sem þarf að viðhafa við stærðfræðinám og nám almennt, upprifjun og þjálfun í undirstöðuatriðum stærðfræði til að geta tekist á við úrlausnarefni í daglegu lífi, þar með talin notkun reiknivélar (vasareiknis). Í öðru lagi að auka sjálfstraust og áhuga á að bæta færni í faginu. Mikilvægi grunnaðgerðanna fjögurra og forgangsröðun þeirra við útreikninga er æfð, þ.e. deiling, námundun, almenn brot og einföldun á almennum brotum og prósentur. Þjálfuð er notkun hugtaka sem nýtast í daglegu lífi og efla sjálfstraust gagnvart stærðfræði og vekja þannig áhuga á hagnýtingu stærðfræði og á eigin getu til að leysa viðfangsefnin jafnt sem viðfangsefni hversdagsins.
    Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu reglum í vinnubrögðum við lausn verkefna
    • mikilvægi eigin þjálfunar við að leysa verkefni í stærðfræði
    • undirstöðu reikniaðgerða og forgangsröðun aðgerða (hvar á að byrja)
    • helstu aðgerðatökkum á reiknivél, til dæmis x í öðru veldi (x2)
    • að þræða sig áfram við úrlausn verkefna á rökvissan hátt
    • hlutfallsreikningi (t.d. hvernig hlutföll eru jafngild).
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • leysa verkefni í tengslum við forgangsröðun aðgerða (forgangsraða algengustu reikniaðgerðum í verkefnum)
    • nota helstu stærðfræðitákn eins og jafnaðarmerki (=)
    • reikna almenn brot
    • reikna einföld prósentuverkefni
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra notkun algengra stærðfræðitákna eins og jafnaðarmerkis, sviga og prósentu
    • nýta formúlur við úrlausnir á skipulegan hátt
    • ræða við aðra um helstu aðgerðir til að leysa fjölbreytt verkefni.
    Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á endurgjöf og leiðsagnarmat á vinnu og virkni nema.