bókstafareikningur, flatarmál og rúmmál. Áframhaldandi samþætting við töflureikni við úrlausn verkefna., forgangsröðun aðgerða, hlutföll, prósentur, veldi og rætur. Grunnþættir SI-einingakerfis í tengslum við massa
Samþykkt af fræðsluaðila
1
60
Tilgangurinn er einkum að auka færni við úrlausnir verkefna og jákvætt hugarfar gagnvart stærðfræði og þar með talið gagnvart eigin getu. Rifjuð er upp forgangsröðun aðgerða og nemar tileinka sér undirstöðuatriði bókstafareiknings, þ.e. að liða og þátta. SI-einingakerfið er kynnt og æfðar grunnaðgerðir við útreikninga á massa, flatarmáli og rúmmáli. Þá er fjallað um veldi og rætur, útreikning á hlutföllum og ítarlegri prósentureikning og lagt upp úr góðri þjálfun með verkefnum. Áfram er svo stöðugt unnið með að efla jákvæða ímynd og að auka getu við að leysa stærðfræðileg viðfangsefni.
Stærðfræði A – mat fræðsluaðila
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forgangsröðun aðgerða
undirstöðu í bókstafareikningi, jöfnum, liðun og þáttun
undirstöðu í velda- og rótareikningi
hlutföllum og prósentureikningi
mikilvægi einfaldrar stærðfræði í daglegu lífi.
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
forgagnsraða aðgerðum
reikna einfaldan bókstafareikning
leysa einfaldar jöfnur með einni óþekktri stærð
leysa verkefni með þáttun og liðun
reikna hlutfalla- og prósentuverkefni
nota reiknivél eða/og töflureikni við úrlausn verkefna.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna skipulega að úrlausn verkefna
miðla og ræða eigin úrlausnir við jafningja
skiptast á skoðunum um leiðir til að leysa verkefni
nýta reikniaðgerðir til að reikna hagnýt verkefni á eigin vegum.
Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á endurgjöf og leiðsagnarmat á vinnu og virkni nema.