Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1601459981.64

    Verkefnavinna
    F-VEVA1SV
    1
    Verkefnavinna
    samþætting við Tölvu- og upplýsingatækni (þjálfun í ritvinnslu/töflureikni við úrlausn verkefna), sjálfstæð verkefnavinna með leiðsögn og stuðningi, skipulögð vinnubrögð, skráning og meðferð upplýsinga
    Samþykkt af fræðsluaðila
    1
    40
    Tilgangur námsþáttarins er að veita undirbúning fyrir sjálfstæða verkefnavinnu í frekara námi eða öðrum störfum. Einnig að veita tækifæri til að samþætta og dýpka þekkingu, leikni og hæfni sem nemar hafa þegar aflað sér í öðrum námsþáttum. Viðfangsefni er unnið í tengslum við kjarnagrein, svo sem erlent tungumál, íslensku eða stærðfræði. Gert er ráð fyrir að nemar vinni einstaklings- eða paraverkefni með áherslu á skipulagningu og skiptingu verkefnis í samvinnu svo vinnuframlag hvers um sig sé álíka við lok verkefnis. Mikilvægt er að miðlun efnis í formi kynningar sé í samræmi við námshluta sem tengjast framsetningu og uppsetningu efnis í ritvinnslu og/eða töflureikni eða öðrum miðlunarforritum sem nota skal við gerð og framsetningu efnis. Innihald og efnistök í kynningunni eru grundvöllur að heildarmati verkefnis en auk þess er tekið tillit til málfars, réttritunar og vandaðs frágangs. Hver nemi skal hafa leiðbeinanda í verkefninu eða kennara í faginu sem leiðbeinir um efnistök og umfang verkefnis. Nemi og leiðbeinandi nota hugbúnað til upprunaathugunar (ritstuldar) við yfirferð verkefnis. Leiðbeinandi skal ekki sjá einn / alfarið um námsmat verkefnisins.
    Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi vandaðra vinnubragða við öflun upplýsinga og heimilda
    • að afmarka efnistök strax við upphaf verkefnis
    • setja skýrar línur fyrir ramma verkefnis
    • nýta fundi með leiðbeinanda með því að vera vel undirbúin/n
    • faglegri uppsetningu verkefnis, með efnisyfirliti og öðru sem þurfa þykir.
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • afla heimilda á bókasöfnum, netinu, með viðtölum eða á annan hátt
    • gera lítilsháttar breytingar á verkefni (ef þarf) út frá samstarfi við leiðbeinanda
    • skrá heimildir á viðurkenndan hátt
    • nota forrit til upprunaathugunar (t.d. Turnitin) til að kanna eigið verk.
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna úr upplýsingum sem aflað er við verkefnið
    • kynna eigið verkefni
    • bera ábyrgð á framgangi eigin vinnu
    • auka eigin færni við sjálfstæða verkefnavinnu.
    Fjölbreytt símat með reglulegri endurgjöf og leiðbeiningu við vinnslu verkefnis. Í tilviki paravinnu bætist við jafningjamat og er gert ráð fyrir tveimur einstaklingsviðtölum, einu fyrir hvorn námsmann, með leiðbeinanda.