Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1608549538.09

    Skýjalausnir
    F-TÆTÖ2SK
    3
    Tæknilæsi og tölvufærni
    Skýjalausn, aðgangsstýring, deiling skjala, tvöföld auðkenning, öryggismál, útgáfusaga skjala
    Samþykkt af fræðsluaðila
    2
    10
    Námsþættinum er ætlað að efla skilning og færni námsmanna í vinnu við skýjalausnir. Fjallað verður um tilgang og notkunarmöguleika skýjalausna. Farið verður yfir samvinnu í gegnum skýjalausnir sem felur í sér að unnið eru á sameiginlegu vinnusvæði í skýi en ekki á einstaka tækjum. Fjallað er um deilingu skjala og gagna í gegnum skýjalausnir, bæði þegar unnið er í sömu skýjalausninni og sitt hvorri. Farið er í hvernig útgáfusaga skjala virkar, aðgangsstýring og öryggismál skýjalausna.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu skýjalausnum og hvað er líkt með þeim og hvað er ólíkt
    • Að skýjalausn er gagnageymsla og vinnslusvæði
    • Öryggismálum skýjalausna og af hverju þau skipta máli fyrir vinnustaði og einstaklinga
    • Tilgangi útgáfusögu skjala í skýjalausnum
    • Hvernig skjölum er deilt í skýjalausn og hver er tilgangur deilingar
    • Tvöfaldri auðkenningu við innskráningu í skýjalausn
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • Vinna með skjöl í skýjalausnum, svo sem að stofnað, vistað, breyta deila skjölum
    • Setja af stað og eiga samskipti og samstarf í skýjalausn
    • Tryggja öryggi skjala í skýjalausnum
    • Geta nýtt tvöfalda auðkenningu til að tryggja öryggi skýjalausna
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Vinna af öryggi bæði sjálfstætt og með öðrum í skýjalausn
    • Geta átt og sett af stað samvinnu í skýjalausn og valið viðeigandi leiðir á öruggan hátt
    • Nýta sér útgáfustýringu skjala til að tryggja gæði skjalavinnslu
    • Vera ábyrgur og gæta öryggis í vinnu við skýjalausnir
    Lögð er áhersla á fjölbreyttar matsaðferðir í samræmi við viðfangsefni námsþáttarins hverju sinni. Við mat á hæfni má notast við spurningar eins og: - Hefur námsmaður verið í aðstæðum þar sem reyndi á þessa hæfni? - Hvert var framlag námsmannsins við slíkar aðstæður? - Hvaða þekkingu og leikni þarf námsmaður að búa yfir til að vera fær um að gera það sem lýst er í hæfniviðmiðum?