Það kom upp villa senda inn  námsþáttur

    námsþáttur


    Búið til: 1611746180.07

    Grunnatriði siglingafræðinnar
    F-SMÁS2CS
    7
    Smáskipanám
    Smáskipanám CS
    Samþykkt af fræðsluaðila
    2
    40
    Undirstöðuþættir siglingafræðinnar, s.s. jörðin, breiddar- og lengdarbaugar, dýpi, misvísun og segulskekkja, vegalengdir, hraði og tími, mið og miðanir, fararstaður, komustaður og meðalbreidd, sjávarföll og straumur, leiðréttingar. Gerðir sjókorta, vinnubrögð með sjókort og útsetningaráhöld. Staðsetja skip með aðstoð þeirra tækja sem um borð eru, reikna og setja út stefnur.
    námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu á baugneti jarðarinnar (breiddarbaugar og lengdarbaugar)
    • uppbyggingu breiddarskala og lengdarskala í sjókortum
    • vörpunum sjókorta, viðmiði sjókorta og núllfleti sjókorta
    • útsetningu á staðsetningum í sjókortum
    • uppmælingu á staðsetningum í sjókortum
    • mælingum á stefnum og vegalengdum í sjókortum
    • pappírssjókortum í mismunandi mælikvörðum
    • útsetningum á skyndi- og reglugerðarlokunum í sjókortum
    • siglingum á milli landshluta og veiðisvæða, siglingum á hafnarsvæðum og í höfnum, strandsiglingum innan um siglingahættur og siglingar í vita
    • sjávarfallatöflum og sjávarfallaalmanaki við útreikninga á sjávarhæð fyrir aðal- og aukahafnir
    • gögnum útgefnum af Landhelgisgæslu Íslands/Sjómælingum Íslands eins og vitaskrá, kortaskrá, kort 1 og tilkynningar til sjófarenda
    • siglingum til hafna eftir vitum, bakborðs- og stjórnborðsbaujum, höfuðáttabaujum, leiðarmerkjum og öðrum leiðsögumerkjum
    • siglingahættum á mismunandi svæðum við strönd landsins
    • áhrifaþáttum (segulskekkja) sem hafa áhrif á segulkompás
    • leiðréttingum á stefnum og miðunum úr réttvísandi stefnum yfir í misvísandi stefnur og öfugt
    námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna í sjókortum í mælikvörðunum 1:10.000 og 1:40.000 (Aðsiglinga- og hafnarkort - Harbour plans and approach chart), 1:100.000 (Strandsiglingakort - Coastal charts) og 1:300.000 (Yfirsiglingakort - Transit charts)
    • reikna hraða, vegalengdir og siglingatíma skipa
    • vinna með baugnet jarðar (breiddarbaugar og lengdarbaugar), breiddarskala og lengdarskala í sjókortum
    • vinna með varpanir sjókorta, viðmið sjókorta og núllflöt sjókorta
    • setja út staðsetningar í sjókort, mæla upp staðsetningar í sjókortum og mæla stefnur og vegalengdir í sjókortum
    • vinna við útsetningar á skyndi- og reglugerðarlokunum í sjókort
    • setja út siglingar á milli landshluta og veiðisvæða
    • reikna sjávarhæð fyrir aðal- og aukahafnir út frá sjávarfallatöflum og með því að nota sjávarfallaalmanak
    • vinna með gögn útgefin af Landhelgisgæslu Íslands/Sjómælingum Íslands eins og vitaskrá, kortaskrá, kort 1 og tilkynningar til sjófarenda
    • setja út aðsiglingar til hafna eftir vitum, bakborðs- og stjórnborðsbaujum, höfuðáttabaujum, leiðarmerkjum og öðrum leiðsögumerkjum
    • greina áhrifaþætti (segulskekkju og misvísun) sem hafa áhrif á segulkompás og framkvæma athugun á þeim
    • framkvæma leiðréttingar á stefnum og miðunum úr réttvísandi stefnum yfir í misvísandi stefnur og öfugt
    • framkvæma athugun á drift vegna vinds og vegna sjávarstraumáhrifa og hvernig á að leiðrétta fyrir þeim
    námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    Einkunnina 6,0 þarf til að standast námsþáttinn.