Fjallað er almennt um lyf og hugtök sem notuð eru í lyfjafræði s.s. lyfjaform, ábendingar, frábendingar, aukaverkanir, frásog, skammtastærðir, flokkun lyfja, helmingunartíma, læknisfræðilegan stuðul, aðgengi og meðhöndlun lyfja. Farið yfir flokkunarkerfi lyfja og teknir fyrir helstu flokkar sem tengjast algengum sjúkdómum og kvillum. Í því samhengi er m.a. fjallað um geðlyf, lyf við hjarta-, æða- og meltingarsjúkdómum, sykursýki, stoðkerfisvanda og -verkjum, húð- og öndunarfærasjúkdómum. Áhersla á að nemar öðlist leikni í að afla sér hagnýtra upplýsinga um lyf, fjallað er um mikilvæg atriði tengd lyfjaformi og lyfjagjöf og að auki rædd ýmis álitamál í tengslum við misnotkun lyfja.
Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu lyfjaflokkum við algengum sjúkdómum og kvillum
ATC -flokkunarkerfi lyfja
hugtökum um virkni lyfja, frásog, umbrot og útskilnað úr líkamanum
mikilvægi öflunar áreiðanlegra upplýsinga um lyf
helstu atriðum varðandi lyfjaform og lyfjagjöf
lyfjamisnotkun og ávanahættu ákveðinna lyfja
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og greina upplýsingar í fylgiseðlum lyfja
afla mikilvægra upplýsinga um lyf og að leita upplýsinga með mismunandi hætti í sérlyfjaskrá
aðstoða þjónustunotendur við notkun ýmissa lyfjaforma
afla upplýsinga um algeng lyf sem tengjast lyfjamisnotkun.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla upplýsingum um lyf til þjónustunotenda
bera saman tengsl aukaverkana lyfja við verkun þeirra
ræða ýmis álitamál tengd misnotkun á lyfjum
leiðbeina og aðstoða þjónustunotendur við töku tiltekinna lyfjaskammta.
Símat með fjölbreyttum matsaðferðum og áherslu á leiðsagnarmat, munnlegt og skriflegt, samofið kennslu. Verkefni ýmist í formi einstaklings-, hópa-, umræðu- og netverkefni.