Hæfni nema í tölvu- og upplýsingatækni er efld með þjálfun sem byggir á skilningi við almenna tölvuvinnslu. Fjallað um notkun tölvupósts og tengdra forrita til samnýtingar og samþættingar annarra forrita auk almennra samskipta á Netinu (boðorðin 10). Þá er fjallað um og þjálfuð færni í notkun algengasta hugbúnaðar fyrir ritvinnslu, töflureikni og kynningar (glærugerð). Námsfólk fær þjálfun í framsetningu upplýsinga á margvíslegu formi við vinnslu verkefna. Fjallað um tölvubúnað og hvernig best má hagnýta hann í námi og starfi. Fjallað er um almenn atriði upplýsingalæsis, m.a. er farið yfir upplýsingaöflun, útgáfuform upplýsinga, bókasöfn, handbækur og tölvusamskipti.
Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugbúnaði fyrir ritvinnslu, töflureikni, kynningum og tölvupósti
uppsetningu efnis í hugbúnaði sem notaður er
tölvukerfi fræðsluaðila
mikilvægi þess að vanda sig í samskiptum í tölvupósti og á neti
skráningu og notkun heimilda.
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
ræða upplýsingasöfnum og tengd málefni
vinna skipulega í verkefnum í tölvuhugbúnaði
afla og flokka gögn
setja upp efni í ritvinnslu og glærugerð
nota vönduð samskipti í tölvupósti og á samfélagsmiðlum.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita gagnrýni við heimildaleit og -notkun af netinu
hagnýta hugbúnaðinn til að nýta hann sem best.
Fjölbreytt leiðsagnarmat sem byggir á vinnu og virkni nema. Verkefni ýmist sem einstaklings-, hópa-, umræðu- og netverkefni.