Hér er grunnfærni tungumálsins þjálfuð. Þjálfun í munnlegri tjáningu, læsi með æfingum í tengslum við orðaforða og lesskilning með áherslu á fjölbreytta texta. Þjálfun í notkun hjálpargagna, s.s. rafrænar orðabækur og leiðréttingaforrit fyrir ritað mál, að punkta hjá sér minnisatriði og skilaboð, að tileinka sér rétta málnotkun, að geta tjáð sig í töluðu og rituðu máli og að geta tekið þátt í einföldu spjalli. Nemar lesa stutta texta, smásögur, fréttaefni og efni af Netinu. Hlustun og myndefni notað sem efniviður í ýmiss konar verkefni og æfingar.
Námsþátturinn er á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Aðgangur að námsleiðinni – mat fræðsluaðila
námsmaður skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuatriðum enskrar málfræði
mikilvægi þess að auka orðaforða til að efla málskilning
notkun helstu hjálpargagna við tungumálanám
algengustu framburðarreglum.
námsmaður skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig í samfelldu máli um einfalda hluti munnlega og skriflega
nota talmál um kunnugleg efni
skrifa samfelldan texta um kunnuglegt efni
hlusta á og taka þátt í einföldum beinum samtölum
nýta rafrænar orðabækur og önnur stafræn hjálpargögn í tungumálanámi.
námsmaður skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
auka orðaforða sinn og samtalshæfni
kunna skil á helstu undirstöðuatriðum enskrar málfræði
afla sér upplýsinga og hagnýta sér þær í námi
skrifa texta með viðeigandi málsniði.
Símat með áherslu á leiðsagnarmat með tíðri endurgjöf sem byggir á vinnu og virkni nema, einstaklings-, hópverkefni og stuttar kannanir eftir atvikum.