Félagsvísindabraut (Staðfestingarnúmer 206) |
1503943565.44 |
3 |
4fb2704e874d802e5451c0bb |
Félagsvísindabraut (Staðfestingarnúmer 206) 17-206-3-6 |
stúdent |
hæfniþrep 3 |
Á félagsvísindabraut er lögð áhersla á gott almennt nám með sérstaka áherslu á góða þekkingu á sviði félags- og hugvísinda. Að loknu námi eiga nemendur að hafa góða undirstöðuþekkingu á áðurnefndum sviðum og vera færir um að nýta sér hana við margvísleg verkefni og til frekara náms, einkum í félags- og hugvísndum. Valmöguleikar, s.s. lokaverkefni á braut, gefa nemendum kost á því að sveigja námið að einhverju leyti að þörfum sínum og áhugasviðum. Á þann hátt geta þeir einnig undirbúið sig fyrir ýmisskonar framhaldsnám, t.d. með hliðsjón af fyrirliggjandi aðgangsviðmiðum námsbrauta háskólanna enda er stúdentspróf undirbúningur fyrir háskólanám. |
Grunnupplýsingar
Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði á félagsvísindabraut eru að nemandi hafi að lágmarki einkunnina C í kjarnagreinum úr grunnskóla. Til að hefja nám á öðru þrepi í kjarnagreinum þarf nemandi að lágmarki einkunnina B í viðkomandi grein úr grunnskóla. |
Nám á félagsvísindabraut er fyrst og fremst bóklegt og fer fram í skólanum. Á brautinni er lögð áhersla á nám í félags- og hugvísindum. Kjarninn samanstendur af áföngum sem nemendur af öllum stúdentsbrautum taka en brautarkjarninn er sérkenndur fyrir félagsvísindabraut. Frjálsu vali þarf nemandinn að haga þannig að skilyrðum aðalnámskrár um þrepaskiptingu náms til stúdentsprófs sé fullnægt. Vegna smæðar skólans geta þær aðstæður komið upp að æskilegt eða jafnvel nauðsynlegt kann að reynast að sækja nám í einstaka áfanga/áföngum til annarra skóla s.s. með fjarnámi. |
Símat er ríkjandi þáttur í námsmati skólans og er áhersla lögð á fjölbreyttar matsaðferðir til að koma til móts við mismunandi þarfir nemenda. Leiðsegjandi mat er lykilatriði í námsmati. Umgjörð námsmats er útfært í skólanámskrá, en nánar er kveðið á um námsmat einstakra áfanga í kennsluáætlunum hverju sinni. Stöðumat er gefið tvisvar á önn í öllum námsgreinum. |
|
Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 200 einingar. Námstími til stúdentsprófs er áætlaður 3 ár, en getur verið sveigjanlegur. Gert er ráð fyrir að nemendur ljúki 33-34 einingum á önn. Lokaeinkunn hvers áfanga má ekki vera lægri en 5,0. |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
- að gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni og nýta styrkleika sína
- að takast á við frekara nám á sviði félags- og hugvísinda og geta nýtt sér þá kunnáttu
- að nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt
- að beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
- að taka þátt í lýðræðislegri umræðu og samstarfi
- að leita raka fyrir skoðunum sínum og setja þær fram á skýran og aðgengilegan hátt
- að beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga og úrvinnslu og túlkun þeirra
- að njóta, nýta og virða félagslegt umhverfi sitt á skynsamlegan hátt
- að greina einkenni og þróun samfélaga og gera sér grein fyrir mótunaröflum einstaklinga og hópa
- að átta átta sig á meginstraumum menningar, trúar, uppeldis, stjórnmála og hagþróunar í fortíð og nútíð
- að tengja námið á brautinni nærumhverfi sínu, hvort heldur er skólans eða í heimabyggð
|
Einingafjöldi
Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
Kjarni
Skylduáfangar brautarinnar
Áfangar:
|
Almennur kjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Áfangar:
|
Brautarkjarni félagsvísindabrautar
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
1 af 3
|
Áfangar:
|
Danska á 1. þrepi
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Áfangar:
|
Danska á 2. þrepi
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Áfangar:
|
Þýska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
40 af 130
|
|
40 af 130
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Frjálst Val
Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Nemendur velja 28 einingar í frjálsu vali.
Við val á einingum í frjálsu vali þarf að hafa í huga að uppfylla skilyrði um þrepaskiptingu. |