Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Náttúruvísindabraut (Staðfestingarnúmer 565) 24-565-3-6 | stúdent | hæfniþrep 3 |
Lýsing: | Námi á náttúruvísindabraut er ætlað að veita nemendum góða og almenna undirstöðuþekkingu í kjarnagreinum og náttúruvísindum. Áhersla er lögð á stærðfræði og sérgreinar brautarinnar s.s. líffræði, jarðfræði, efnafræði og eðlisfræði. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og hún er góður undirbúningur fyrir frekara nám á háskólastigi í tæknigreinum, náttúruvísindum, stærðfræði og heilbrigðisvísindum. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Nemendur með A, B+, B, C+ og C í kjarnafögum á grunnskólaprófi geta innritast á námsbrautina. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. |
Skipulag: | Nám á náttúruvísindabraut er fyrst og fremst bóklegt nám. Námsbrautin skiptist í kjarna, brautarkjarna og frjálst val. Kjarninn samanstendur af áföngum sem nemendur á öllum stúdentsbrautum taka en brautarkjarninn er einkennandi fyrir náttúruvísindabraut. Gæta þarf að því að kröfum um fjölda eininga á hæfniþrepi sé fullnægt: • Einingar á fyrsta hæfniþrepi mega vera að hámarki 33% • Einingar á öðru hæfniþrepi mega vera að hámarki 50% • Einingar á þriðja hæfniþrepi þurfa að vera að lágmarki 17%. |
Námsmat | Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Lokanámsmat áfanga byggir m.a. á lokaprófi, mætingu, ástundun, verkefnaskilum, skyndiprófum, ritgerðum og sjálfs- og jafningjamati. |
Starfsnám: | |
Reglur um námsframvindu: | Lágmarkseinkunn er 5 í öllum áföngum. Meðalnámstími er 6 annir og þarf nemandi að ljúka að meðaltali 33-37 einingum á önn. Lágmarkseiningafjöldi á brautinni er 200 einingar. |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
200 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Lýsing: | Í frjálsu vali eru 20 einingar. Við val á áföngum þarf nemandi að hafa í huga samsetningu áfanga hvað þrepaskiptingu varðar til að uppfylla skilyrði aðalnámskrár. |