Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Félagsliðabraut (Staðfestingarnúmer 479) 21-479-3-9 | félagsliði | hæfniþrep 3 |
Lýsing: | Markmið náms og kennslu á félagsliðabraut er að auka þekkingu og fagkunnáttu þeirra sem sinna einstaklingum á öllum aldri sem þurfa sérhæfða þjónustu. Markmiðið er að gera nemendur færa um að styrkja sjálfsmynd þjónustunotenda, stuðla að auknu sjálfstæði þeirra og gera þá færari til að sinna athöfnum daglegs lífs. Kynntar eru aðferðir til að greina, skilja og virða þarfir fólks auk þess sem stefnt er að því að auka lífsgæði þeirra sem þjónustunnar njóta, bæði líkamlega, efnislega, félagslega og tilfinningalega. Sérstök áhersla er lögð á að ná fram hæfni nemenda til þess að takast á við raunveruleg viðfangsefni þar sem fyrirmæli, verklýsing og vinnuaðferðir liggja fyrir. Jafnframt er leitast við að þjálfa nemendur til að takast á við ófyrirséð verkefni og aðstæður þar sem lausnir liggja ekki í augum uppi en krefjast þekkingar, læsis á aðstæður, hugkvæmni, hæfni í samskiptum, rökvísi og leikni í lýðræðislegum vinnubrögðum.
Hæfniþrep Námslok á félagsliðabraut eru skilgreind á þriðja hæfniþrepi. Nám á þriðja þrepi ásamt forkröfum á öðru þrepi mynda sérsvið brautar. Hæfniviðmið taka mið af kröfum um lykilhæfni og hæfni starfa. Auk þess er gert ráð fyrir að nemandi hafi náð þeirri hæfni sem endurspeglast í grunnþáttum menntunar. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Til þess að geta hafið nám á félagsliðabraut þarf nemendi að hafa lokið námsmarkmiðum grunnskóla með lágmarksárangri í stærðfræði, íslensku og ensku. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð einkunn B við lok grunnskóla eða hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. Nánar er fjallað um inntöku og inntökuskilyrði í skólanámskrá. |
Skipulag: | Nám fyrir félagsliða er skipulagt sem sex anna nám. Nemendur velja á milli sérhæfingar náms til starfa með fötluðu eða öldruðu fólki. Vinnustaðanám fer fram á lokaönnum námsins. |
Námsmat | Á félagsliðabraut er leitast við að mynda sterka tengingu milli námsmats og kennsluhátta og að gera námsmat eins samofið náminu og kostur er. Tilgangur námsmats er tvíþættur: Annars vegar að kanna að hve miklu leyti nemandi hefur tileinkað sér þau viðmið um þekkingu, leikni og hæfni sem sett eru í einstökum námsáföngum en hins vegar gagnast matið nemanda við að meta stöðu sína og gengi í námi. Kennarar á félagsliðabraut eru hvattir til þess að beita fjölbreyttum aðferðum við námsmat þannig að hver nemandi fái tækifæri til að sýna það sem í honum býr. Nám og kennsla skal vera einstaklingsmiðuð eftir því sem kostur er. |
Starfsnám: | Vinnustaðanám og starfsþjálfun er mikilvægur þáttur náms á félagsliðabraut. Markmið náms á vettvangi er að gera nemanda kleift að auka hæfni sína með því að hagnýta þá þekkingu og leikni sem hann hefur öðlast í námi sínu innan skólans. Vinnustaðanámið eru tveir 10 eininga áfangar þar sem gert er ráð fyrir að nemendur séu í 180 klukkustundir á vinnustað í hvorum áfanga. Nánari grein er gerð fyrir inntaki og sérstöðu vinnustaðanáms í áfangalýsingum fyrir vinnustaðanám. Starfsþjálfunaráfanginn er 20 einingar og er launað starf í a.m.k. 360 klukkustundir á vinnustað sem fellur að áhugasviði nemanda. Nánari grein er gerð fyrir inntaki og sérstöðu starfsþjálfunaráfanga í áfangalýsingu.
Mat á starfsreynslu Nemendur sem hafa umtalsverða reynslu af störfum tengdum þeim sem nám á félagsliðabraut veitir undirbúning fyrir eiga kost á að fá reynslu sína metna til námseininga á framhaldsskólastigi. Einstaklingar sem hafa a.m.k. þriggja ára starfsreynslu og hafa náð tuttugu og þriggja ára aldri gefst kostur á að undirgangast slíkt mat. |
Reglur um námsframvindu: | Til að standast áfanga þarf nemandi að hljóta einkunnina 5,0 eða S (staðist). |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
200 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Bundið pakkaval
Fjöldi pakka sem nemendur velja: | 1 af 2 |
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Nei, frjálst val er ekki leyft