Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Framhaldsskólabraut (Staðfestingarnúmer 213) 16-213-2-3 framhaldsskólapróf hæfniþrep 2
Lýsing: Framhaldskólabraut er ætluð nemendum sem eru óráðnir í námsvali eða hafa ekki náð fullnægjandi námsárangri í kjarnagreinum grunnskóla. Brautin hefur það markmið að vekja áhuga nemandans á námi á ferðaþjónustu eða öryggi og björgun. Brautinni er jafnframt ætlað að styrkja námhæfni nemandans.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Nemendur sem hafa lokið skyldunámi í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla geta innritast á framhaldskólabraut. Inntökuskilyrði eru nánar útfærð í skólanámskrá.
Skipulag: Brautin eru skipulögð sem þriggja til fjögurra anna nám. Námið skiptist í kjarna og síðan geta nemendur valið um starfstengda sérhæfingu. Ferðaþjónusta eða öryggi og björgun. Hver námsáfangi er sjálfstæð heild en þó verður lögð áhersla á þverfaglega vinnu þegar heildstæð viðfangsefni eru tekin fyrir.
Námsmat Í kennslunni er margir möguleikar á að kanna og meta námsárangur og getu nemenda. Metin verða verkefni af ýmsu tagi sem nemendur leysa í kennslustundum, í heimavinnu eða vinnustaðanámi. Einnig verða notuð skrifleg og/eða verkleg próf.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Til að útskrifast af brautinn þarf nemandi að hafa lokið 100 feiningum. Nemandi þarf að hafa lokið fullnægjandi árangri (4,5) í áfanga til að fá hann metinn og til að hann öðlist rétt til að sækja framhaldsáfanga.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • vinna á sjálfstæðan, ábyrgan og skapandi hátt undir leiðsögn
  • tileinka sér almennar siðareglur eins og heiðarleika, stundvísi, ábyrgðarkennd, nákvæmni og snyrtimennsku
  • eiga í góðum samskiptum og eiga samstarf á vinnustað
  • tileinka sér lífsvenjur sem eru uppbyggilegar fyrir líkamlegt og andlegt heilbrigði
  • sýna umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra og lífsýn
  • taka sjálfstæðar ákvarðanir
  • takast á við frekara nám

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

100  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Kjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Bundið pakkaval

Öryggi og björgun
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Ferðaþjónusta
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi pakka sem nemendur velja: 1 af 2

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Frjálst val eru 9 feiningar. Að lágmarki þurfa 50% af einingunum að vera á öðru þrepi brautarinnar.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • með því að efla talnalæsi þar sem unnið er með tölur, fjármál og stærðfræði daglegs lífs
  • með því að þjálfa nemendur í því að nýta sér upplýsingatækni á markvissan hát
Námshæfni:
  • með því að nemendur geti beitt góðum vinnubrögðum á vinnustað undir leiðsögn
  • með því að nemandi læri að setja sér markmið í námi og starfi
  • með því að nemandi ölist sjálfsstaust og læri að þekkja styrkleika sína og veikleika
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • með fjölbreyttum kennsluaðferðum og verkefnum þar sem mismunandi hæfileikar nemenda fá að njóta sín
Jafnrétti:
  • Í skólanum er í gildi jafnréttisáætlun sem kveður á um að sérhver einstaklingur fái tækifæri til að nýta hæfileika sína óháð andlegu og líkamlegu atgervi, kynferði, kynhneigð, litarhætti, þjóðerni, trú, búsetu eða efnahag. Jafnframt er stefnt að því að tryggja hverjum og einum viðfangsefni og menntun við hæfi. Nemendur eru hvattir til að velja sér nám eftir áhugasviði og leitast er við að gera þá meðvitaða um áhrif fyrirmynda og staðalmynda á eigin ímynd og lífsstíl. Nemendur vinna ýmis verkefni sem tengjast jafnrétti í víðum skilningi t.d. fordómum, fjölmenningu, kynhneigð, fötlun og trúarbrögðum. Þá læra nemendur að greina áhrif þessara þátta á líf einstaklinga og hóp
Menntun til sjálfbærni:
  • með því að efla vitund nemenda um sjálfbærni umhverfis, samfélags, menningar og efnahagskerfis þannig að þeir geti tekið upplýsta afstöðu til álitamála
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • með því að nemendur geti skilið einfaldan texta á enskri tungu, tjáð sig á einfaldan og skiljanlegan hátt, lesið sér til fróðleiks og tekið þátt í samræðum.
Heilbrigði:
  • Skólinn er heilsueflandi framhaldsskóli. Lögð er áhersla á heilsusamlegan lífsstíl þar sem næring, hreyfing og geðrækt eru í forgrunni. Að loknu námi þekkja nemendur gildi reglulegrar hreyfingar og mikilvægi fjölbreyttrar og næringarríkrar fæðu og verða þannig ábyrgir fyrir eigin heilsu. Við skólann er markvisst unnið að fræðslu sem tengist forvörnum þannig að nemendur verði meðvitaðir um skaðsemi tóbaksnotkunar, áfengisneyslu og notkunar annarra vímuefna. Fjallað er um neyslu og fíkn, tengsl hugar og líkama og ýmsa félagslega þætti sem stýra hegðun og athöfnum einstaklinga og hafa áhrif á heilbrigði og lífsstíl
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • með því að þjálfa lestur, lesskilning, ritun og fjölbreytta málnotkun
  • með því að þjálfa nemendur að tjá sig á íslensku í ræðu og riti
Lýðræði og mannréttindi:
  • með því að efla vitund nemenda um réttindi þeirra og skyldur