Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Starfsbraut (Staðfestingarnúmer 411) 19-411-1-12 | starfsbraut | hæfniþrep 1 |
Lýsing: | Markmið starfsbrautar er að undirbúa nemendur undir lífið og þátttöku í atvinnulífinu og/eða frekara námi. Nemendahópurinn er breiður og námið og/eða hæfniviðmiðin geta verið einstaklingsmiðuð. Starfsbraut er fyrir nemendur sem hafa verið í námsverum eða í sérdeildum í grunnskólum og/eða haft aðlagað námsefni. Nemendur þurfa einnig að hafa viðurkennd greiningargögn til að komast inn á brautina. Unnið er út frá styrkleikum hvers og eins og áhersla er á að efla sjálfsmynd nemenda. Að námi loknu eiga nemendur að hafa fengið almennan undirbúning fyrir lífið og í grunnþáttum menntunar. Þeir eiga einnig að hafa kynnst og/eða öðlast starfsreynslu á vinnumarkaði. Námið er á fyrsta þrepi, þ.e. almenn og hagnýt þekking sem miðast við stöðu hvers og eins. Ekkert er því til fyrirstöðu að nemendur geti tekið áfanga á öðrum námsþrepum og námsbrautum, þ.e. ef þeir hafa áhuga og/eða hæfni til þess. Nám á starfsbraut tekur allt að fjögur ár en þar sem námið er einstaklingsmiðað geta áherslur og þátttaka í áföngum verið mismunandi á tímabilinu. Leitast verður við að hafa námið sem fjölbreyttast og þverfaglegt innan brautar og í samstarfi við aðrar brautir. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Viðurkennd greiningargögn um fötlun skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992. |
Skipulag: | Námstíminn miðast við átta annir sem skiptast í 16 spannir. Brautinni er skipt í kjarna og val. Í kjarna eru skylduáfangar brautarinnar. Nemendur taka valáfanga jafnt og þétt í náminu samhliða kjarnaáföngum. Nám á brautinni er blanda af bóklegu og verklegu námi. Áhersla er á að styrkja náms,- starfs- og félagslega stöðu nemenda ásamt samskiptahæfni og sjálfstrausti. Allir nemendur hafa umsjónarkennara sem aðstoða þá við námið og miðlun upplýsinga til og frá skóla. Námið er einstaklingsmiðað og aðlagað að hverjum og einum og horft er til styrkleika og áhugasviðs. Einstaklingsnámskrá er gerð fyrir alla nemendur brautarinnar í upphafi hverrar annar. Valáfangar taka mið af því sem almennt er í boði í skólanum hverju sinni ásamt því er reynt að koma til móts við áhuga, þarfir og óskir nemenda með starfsbrautaráföngum. Þetta geta verið ýmiskonar áfangar s.s á sviði verknáms, matreiðslu, listnáms, hönnunar, íþrótta, tungumála og upplýsingatækni. Kennsluhættir brautarinnar eru fjölbreyttir og einstaklingsmiðaðir. |
Námsmat | Námsmatið er einstaklingsmiðað, s.s. leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og lokapróf. Regluleg endurgjöf er frá kennara á vinnuframlag nemenda og verkefnaskil. |
Starfsnám: | Starfsnám getur farið fram innan skólans eða utan hans. Allir nemendur fara í starfsnámsáfanga sem eru fjölbreyttir og mismunandi. Nemendur kynnast vinnumarkaðinum, starfsheitum, réttindum og skyldum, ýmis konar vinnustöðum og mikilvægi góðra samskipta á vinnustað. Áhersla er á að finna út hvar styrkleikar og áhugasvið nemenda liggja, ásamt því að efla jákvæðni og áhuga þeirra í garð atvinnulífsins. Markmið náms og þjálfunar á vinnustað er að kynna nemendum möguleika á störfum í nærumhverfi sínu og gera þá hæfari til að takast á við almenn störf á vinnumarkaði. Lögð er áhersla á vinnubrögð, öryggismál, mætingar og vinnu í hópi. Jafnframt fá nemendur reynslu og yfirsýn sem nýtist þeim í framtíðinni. Árangur námsins verður markvissari þegar hægt er að tengja námið við vinnustaði því það veitir nemendum oft aðra sýn á námið í skólanum og tilgangur námsins verður oft skýrari. Vinna nemenda er skipulögð í samráði við vinnuveitendur en er undir eftirliti kennara. Námið er metið í samráði við vinnuveitendur og umsjónarmenn námsins frá skólans hendi og einkum er leitast við að meta þætti á borð við ástundun, sjálfstæði í vinnubrögðum og frumkvæði. Viðverutími og stuðningur við nemendur er einstaklingsmiðaður. |
Reglur um námsframvindu: | Námi á starfsbraut lýkur með brautskráningu eftir fjögur ár. Mögulegt er að brautskrá nemanda fyrr ef aðstæður nemanda leyfa. Brautskráning er óháð fjölda áfanga eða eininga sem nemandi hefur lokið. Námið er einstaklingsmiðað og því geta áherslur og þátttaka í áföngum verið mismunandi á tímabilinu. |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
240 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Bundið áfangaval
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " | 128 af 225 |
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Lýsing: | Í bundnu áfangavali eru þeir valáfangar sem eru í boði á starfsbraut. Nemendur velja valáfanga brautarinnar og annað námsframboð skólans eftir því sem við á. Fjöldi áfanga og einingafjöldi sem nemendur velja er einstaklingsbundinn. Markmiðið er að bjóða nemendum upp á fjölbreytt og einstaklingsmiðað nám. Gert er ráð fyrir að nemandi sé skráður í lýðheilsu á hverri önn. |