Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Nýsköpunarbraut (Staðfestingarnúmer 352) 17-352-2-3 | framhaldsskólapróf | hæfniþrep 2 |
Lýsing: | Á Nýsköpunarbraut er áhersla lögð á grunngreinar í frumkvöðla- og markaðsfræðum, hönnunarsögu, myndlistargreinum, verklegum smiðjum og tölvuvinnslu, sem og almennar kjarnagreinar. Brautin er góður grunnur fyrir áframhaldandi nám á stúdentsbraut og hentar vel fyrir þá sem stefna að starfi eða frekara námi í listgreinum, frumkvöðlafræðum eða tæknigreinum. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Inngönguskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið grunnskólaprófi. Til að hefja nám í kjarnagreinum á öðru þrepi þarf nemandi að hafa lokið námi í grunnskóla í viðkomandi námsgrein með einkunnina B eða hærra eða hafa lokið námi á 1. þrepi í viðkomandi námsgrein. |
Skipulag: | Nýsköpunarbraut er á 2. þrepi og er byggð upp af kjarna og brautarkjarna. Kjarni og brautarkjarni eru samtals 116 einingar og eru skylduáfangar fyrir nemendur brautarinnar. Á brautinni er áhersla á verklegt nám, hönnun, list og nýsköpun. Verklegar smiðjur einkenna brautina sem og myndlistar- og hönnunaráfangar. Á brautinni er einnig bóklegt nám í kjarnagreinunum íslensku, ensku og stærðfræði. Sérkenni brautarinnar í bóklegum greinum koma fram í áherslu á frumkvöðlafræði, markaðsfræði og sögu. |
Námsmat | Hverri önn er skipt í tvo hluta og fer námsmat fram í hvorum hluta fyrir sig. Á brautinni er lögð áhersla á fjölbreytt námsmat. Í verklegum smiðjum og teikniáföngum er lögð áhersla á símat, sjálfsmat og val nemenda á verkefnum. Að öðru leyti vísastí skólanámskrá. |
Starfsnám: | |
Reglur um námsframvindu: | Nemandi þarf að hafa lokið áfanga með fullnægjandi árangri (5) til að fá hann metinn og til þess að nemandinn öðlist rétt til þess að sækja framhaldsáfanga. |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
116 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Nei, frjálst val er ekki leyft