Stúdentsbraut að loknu starfsnámi |
1543568078.12 |
3 |
4fe3212d045c2618e32ae413 |
Stúdentsbraut að loknu starfsnámi 18-425-3-7 |
stúdent |
hæfniþrep 3 |
Brautin er ætluð nemendum í starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi.
Markmið með námsleiðinni er að uppfylla þær lágmarkskröfur sem aðalnámskrá framhaldsskóla setur til stúdentsprófs. Sérhæfing nemandans er fólgin í starfsnámi hans.
Mikilvægt er að nemendur skipuleggi nám sitt til að mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem þeir stefna á í háskóla. |
Grunnupplýsingar
Meginatriði brautarlýsingar
Brautin er ætluð nemendum í starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi, eða þeim sem hafa lokið starfsnámi með námslok á 3. hæfniþrepi. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áföngum í þessum greinum. |
Brautin samanstendur af þeim áföngum sem nemendur af starfsnámsbrautum þurfa að lágmarki að taka til að ljúka stúdentsprófi af starfsnámsbraut. Heildarfjöldi eininga ræðst af einingafjölda starfsnámsbrautar og þeim einingum sem koma fram hér, að því tilskyldu að þessir áfangar hafi ekki verið hluti af starfsnámsbraut. Við bætast einingar sem nemandi tekur til að mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem hann stefnir á í háskóla. Nemendur útskrifast að lágmarki með 200 einingar. Nemandi getur tekið þessa áfanga jafnt og þétt gegnum námið eða bætt þeim við þegar starfsnámi lýkur hyggi hann á áframhaldandi nám.
Nemendur þurfa að ljúka 35 eininga kjarna, 15 einingum af 45 úr bundnu áfangavali ensku- og stærðfræðiáfanga og 6 af 24 einingum úr áfangavali félags- og raungreina. Allar sex einingarnar þar þufa að vera innan sömu greinar. Þær einingar sem nemandi hefur þegar tekið í starfsnámi sínu dragast frá. |
Áhersla er lögð á hæfni nemenda á vegferð þeirra og mikilvægt að námsmatið styðji við þau markmið sem stefnt er að. Æskilegt er að í námsmati felist jafnframt leiðsagnarmat, það er leiðbeining til nemenda um hvernig þeir geti með árangursríkustum hætti hagað námi sínu í framhaldinu. Námsmat skal vera réttmætt og áreiðanlegt og umfang þess í samræmi við nám og kennslu í viðkomandi áfanga. Námsmat skal byggja á margvíslegum námsmatsaðferðum og fela í sér traustar heimildir um hæfni nemenda. Þess skal gætt að námsmatið taki til allra þátta námsins þannig að þekking nemenda, leikni og hæfni auk framfara sé metin. Námsmatsaðferðir geta verið verklegar, munnlegar eða skriflegar, falið í sér sjálfsmat, jafningjamat, símat og lokamat. |
Starfsnám er ekki hluti af þessu viðbótarnámi. Brautin samanstendur af þeim áföngum sem nauðsynlegt er að bæta við starfsnámsbrautir á 3. hæfniþrepi til að uppfylla viðmið aðalnámskrár fyrir stúdentsbrautir. |
Reglur um námsframvindu eru samkvæmt skólareglum. |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
- afla sér þekkingar með fjölbreyttum hætti, meta hana á gagnrýninn hátt og nýta við verkefni daglegs lífs, til frekara náms eða starfs
- nálgast viðfangsefni sín og umhverfi á víðsýnan, umburðarlyndan og ábyrgan hátt
- fjalla um og taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
- skilja og bera virðingu fyrir ólíkum menningarheimum og átta sig á að tungumálið er stór þáttur í sjálfsmynd einstaklings og þjóðar
- beita vísindalegri hugsun og aðferðum við greiningu viðfangsefna, öflun upplýsinga, mælingar, mat, úrvinnslu og túlkun
- sýna frumkvæði, skapandi hugsun og sjálfstæði í vinnubrögðum og við mat á eigin vinnuframlagi og annarra
- afla sér víðtækra upplýsinga, jafnt á íslensku sem ensku og meta áreiðanleika þeirra
- tjá sig og eiga samskipti á íslensku og erlendu tungumáli af öryggi
- gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni og taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi
- taka þátt í upplýstri umræðu og taka ábyrga afstöðu og ákvarðanir er snúa að umhverfis- og orkumálum, lífsskilyrði Jarðarbúa, vísindum og tækni
- takast á við nám á háskólastigi
|
Einingafjöldi
Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
Kjarni
Skylduáfangar brautarinnar
Áfangar:
|
Kjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
15 af 45
|
|
15 af 45
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
6 af 24
|
|
6 af 24
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Frjálst Val
Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Til að ljúka stúdentsprófi þarf nemandi að lágmarki 200 einingar. Vanti nemanda einingar til að ná því lágmarki er frjálst val nauðsynlegt. Mikilvægt er að nemendur dýpki sig í ákveðnum greinum til að vera betur í stakk búnir að takast á við frekara nám og mæta aðgangsviðmiðum þeirrar námsleiðar sem þeir stefna á í háskóla. Hafa þarf í huga við allt val að einingar á fyrsta hæfniþrepi geta verið 66 að hámarki, einingar á öðru þrepi 100 að hámarki og það þurfa að vera að lágmarki 34 einingar á þriðja þrepi. |