Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Grunnnám matvæla- og ferðagreina (Staðfestingarnúmer 83) 19-83-1-2 grunnnám starfsgreina hæfniþrep 1
Lýsing: Grunnnám matvæla - og ferðagreina er námsbraut með námslok á 1. þrepi. Námið er ætlað nemendum sem stefna að frekara námi í matvæla- og ferðagreinum. Námið felur í sér almenna menntun þar sem lögð er áhersla á alhliða þroska nemanda og lýðræðislega virkni. Námið er undirbúningur fyrir iðnnám í matreiðslu, bakstri, framreiðslu og kjötiðn en einnig er það undirbúningur fyrir frekara nám í matartækni og/eða í ferðaþjónustu. Nemendur fá bæði starfskynningu í matvæla- og ferðagreinum á vinnustöðum og fara í vinnustaðanám að eigin vali.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Inntökuskilyrði á brautina eru að nemendur hafi lokið kjarnagreinum grunnskóla með fullnægjandi árangri. Ef fleiri sækja um nám á brautinni en skólinn getur tekið við getur inntökuviðmið orðið hærra en lágmarkið.
Skipulag: Námið er bæði bóklegt og verklegt. Mestur hluti þess fer fram í skóla en þó fara nemendur í 18-24 kennslustundir á hvorri önn í starfskynningu/starfsþjálfun á vinnustað. Þar öðlast nemendur þekkingu og leikni til að takast á við mismunandi störf sem tengjast ferða- og matvælagreinum. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, byggja m.a. á leiðsagnarmati og miðast við að allir nemendur eigi kost á að nýta hæfileika sína og fá endurgjöf á verkefni sín. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og vinnusemi nemenda. Námssamfélagið gengur út á samvinnu kennara og nemenda sem skapar jákvætt og uppbyggilegt umhverfi til náms og starfa.
Námsmat Lögð er áhersla á leiðsagnarmat og símat sem gefur nemendum uppbyggilega og hvetjandi leiðsögn og metur vinnuframlag þeirra jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat er fjölbreytt og aðferðir taka mið af fjölbreyttum kennsluháttum, námsmarkmiðum og hæfni nemenda. Námsmat á brautinni er fólgið í símati og lokaprófi eða eingöngu símati. Nánari tilhögun námsmats s.s. skiladagar verkefna og vægi kemur fram í námsmatsreglum skólans.
Starfsnám: Lengd starfskynningar er 18-24 klst. á hvorri önn. Hún fer fram í fyrirtækjum sem hafa fjölbreytta faglega færni tengda þeim störfum sem um ræðir. Hér er átt við fyrirtæki í ferðaþjónustu s.s. ferðaskrifstofur, hótel, kjötvinnslur, gróðurhús, fiskvinnslur, bakarí, veitingastaði o.fl. Það er á ábyrgð hvers skóla að skipuleggja starfskynningar nemenda þannig að þeir fái tækifæri til að kynnast ólíkum störfum í matvæla- og ferðagreinum. Í þeim fyrirtækjum sem taka á móti nemendum, er gerð krafa um að iðnmeistari eða sveinn í iðngrein annist starfskynninguna.
Reglur um námsframvindu: Nám á grunndeild matvæla- og ferðagreina er 62 einingar og nemendur öðlast hæfni á 1. þrepi. Námstími er 1 ár. Til að standast námsmat í áfanga og fá heimild til að hefja nám í eftirfarandi áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Reglur um námsframvindu eru birtar í skólanámskrá.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • vera virkur þegn í lýðræðisþjóðfélagi og bera virðingu fyrir ólíkri menningu
  • skilja mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin líkama og heilsu
  • afla sér frekara náms í greinunum
  • fjalla um mismunandi störf í matvæla- og ferðaþjónustu
  • vinna mismunandi störf í matvæla- og ferðaþjónustugreinum undir handleiðslu iðnmeistara og/eða tilsjónarmanns
  • gera sér grein fyrir mikilvægi þess að fylgja viðurkenndum starfsaðferðum sem notaðar eru við störf í ferða- og matvælaiðnaði
  • tengja mikilvægi eigin hreinlætis við kröfur um hreinlæti sem gerðar eru í öllum störfum (HACCP) í matvælagreinum
  • eiga samskipti við fólk af skilningi og virðingu
  • bera ábyrgð á eigin framkomu, hafa skýra sýn á þjónustuhlutverkið og geta tekið afstöðu til álitamála sem kunna að koma upp
  • meta öryggi og aðbúnað á vinnustað og beita grunnþáttum skyndihjálpar
  • geta brugðist rétt við utanaðkomandi hættum eins og kostur er

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

62  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Brautarkjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Nemendur á brautinni hafa 10 einingar í frjálsu vali og gæta þessa að uppfylla reglur um skiptingu náms á hæfniþrep. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um kjarnagreinar og hafa náð einkunn B við lok grunnskóla til að hefja nám á 2. hæfniþrepi.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • Mikið reynir á talna- og upplýsingalæsi nemenda í fjölmörgum áföngum brautarinnar þ.á.m. lokaverkefninu. Þar eru gerðar kröfur um vinnubrögð á háskólastigi, þ.e. að nemendur séu læsir á upplýsingar frá ólíkum miðlum, geti nýtt sér margvíslega tækni í upplýsingaleit, aflað gagna, flokkað þau og nýtt sér upplýsingarnar á gagnrýninn hátt. Nemendur fá þjálfun í að lesa, meta, túlka og kynna tölfræðilegar og myndrænar upplýsingar.
Námshæfni:
  • Á námstímanum er unnið að því að efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda og gera þá ábyrga í náminu. Nemendur greina styrkleika sína og veikleika og fá aðstoð við að setja sér raunhæf námsmarkmið, forgangsraða verkefnum, skipuleggja nám sitt og vinnutíma. Kennslu- og námsaðferðir eru fjölbreyttar og nemendur þjálfast í að vinna ólík verkefni sem reyna á ýmsa hæfni. Þeir fá þjálfun í að deila þekkingu sinni með öðrum og er það gert t.d. í gegnum hópavinnu, paravinnu, kynningar á verkefnum, samvinnunám og fleira. Nemendur læra að meta eigið vinnuframlag og annarra t.d. með sjálfsmati og jafningjamati. Með stigvaxandi kröfum í námi lærir nemandi að takast á við ný verkefni og áskoranir, yfirstíga hindranir og nýta fyrri reynslu, þekkingu og skilning við úrlausn nýrra verkefna.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • Í gegnum skólastarfið nýta nemendur sköpunarkraft sinn á margvíslegan hátt í lífi og starfi innan skólans og utan. Í skólanum eru settar upp leiksýningar, listsýningar, söngkeppnir og ýmsar skemmtanir sem krefjast þess að nemendur sýni frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun og nýti þekkingu sína til að skapa og búa til eitthvað nýtt og draga lærdóm af. Á brautinni reynir á útsjónarsemi, færni, skipulag og fagurfræði í öllum verkefnum sem nemendur þjálfast í. Þeir fá þjálfun við að útfæra eigin hugmyndir og gera tilraunir með ólík hráefni.
Jafnrétti:
  • Í skólanum er í gildi jafnréttisáætlun sem segir að stuðla skuli að því að hver einstaklingur nýti hæfileika sína og krafta sem best, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, kynferði, kynhneigð, litarhætti, þjóðerni, trú, búsetu eða efnahag. Jafnframt er stefnt að því að tryggja hverjum og einum viðfangsefni og menntun við hæfi. Lögð er áhersla á að starfið á brautinni stuðli að jöfnum rétti kynja til náms og að nemendur séu hvattir til að velja sér nám eftir áhuga. Með þessu er leitast við að gera nemendur meðvitaða um áhrif fyrirmynda og staðalmynda á eigin ímynd og lífsstíl og að þeir geti myndað sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu. Nemendur vinna ýmis verkefni sem tengjast jafnrétti í víðum skilningi t.d. fordómum, fjölmenningu, kynhneigð, fötlun og trúarbrögðum. Þá læra nemendur að greina áhrif ýmissa þátta á líf einstaklinga og hópa, t.d. stéttar, trúarbragða, þjóðernis, kynhneigðar, litarháttar, búsetu o.fl.
Menntun til sjálfbærni:
  • Nemendur á brautinni eru þjálfaðir í sjálfbærri hugsun með því að nýta vel þau aðföng sem til þarf, að ígrunda vel innihald og uppruna hráefnis, að huga að umgengni við vinnuumhverfi námsins, að flokka úrgang og nýta afganga sem best. Einnig er lögð áhersla á upplýsta þekkingu á nýtingu orku við matvæla og ferðaþjónustu og á virðingu fyrir náttúruauðlindum sem nýttar eru í náminu. Námið tekur mið af neytendavernd og beinir sjónum að matvælaöryggi, velferð og heilbrigði dýra, rekjanleika matvæla , heilbrigðum matarvenjum og lífstíl. Í öllu skólastarfinu er lögð áhersla á sjálfbærni og sjálfbæra hugsun. Unnið er að því að nemendur verði virkir og ábyrgir borgarar bæði í samfélaginu og umhverfi sínu. Lögð er áhersla á að nemendur skilji hvernig vistkerfi jarðar setur manninum takmarkanir, sanngjarna skiptingu auðlinda og skynsamlega nýtingu þeirra. Nemendur vinna með upplýsingar um eigin neysluvenjur og setja í samhengi við nýtingu náttúruauðlinda. Einnig taka þeir þátt í samræðum sem varða umhverfisvitund og sjálfbærni á ábyrgan og rökrænan hátt. Nemendur taka ábyrga og upplýsta afstöðu til umhverfismála og nýtingu náttúruauðlinda. Lögð er áhersla á að nemendur virði mannréttindi, skoðanir annarra og umhverfi sitt.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • Nemendur eru hvattir til að tjá sig á erlendum tungumálum í því tungumálanámi sem þeir leggja stund á. Nemendur fá fjölbreytta texta til að vinna með, tjá sig bæði munnlega og skriflega um innihald textanna og auka orðaforða sinn um leið. Einnig er lögð rík áhersla á samræðu og tjáningu í ræðu og riti t.d. um bókmenntir og kvikmyndir. Í tungumálanáminu er leitast við að veita nemendum innsýn í ólíka menningarheima og siði sem einkennir þau landsvæði þar sem viðkomandi mál er talað. Í mörgum öðrum greinum en tungumálum kynna nemendur sér ítarefni og nýta sér heimildir á erlendu tungumáli í tengslum við verkefnavinnu og fá þannig þjálfun í að lesa viðkomandi fagmál. Skólinn leitast við að taka þátt í samskiptum við skóla og skyldar stofnanir erlendis og er lögð áhersla á að nemendur taki þátt í erlendum samstarfsverkefnum.
Heilbrigði:
  • Skólinn tekur þátt í verkefni um heilsueflandi framhaldsskóla. Lögð er áhersla á heilsusamlegan lífsstíl, næringu, hreyfingu og geðrækt. Nemendur eru ábyrgir fyrir eigin heilsu, líkamlegri og andlegri og taka ábyrga afstöðu til eigin velferðar og heilbrigðis. Að loknu námi þekkja nemendur gildi reglulegrar hreyfingar og mikilvægi fjölbreyttrar og næringarríkrar fæðu. Við skólann er markvisst unnið að fræðslu sem tengist forvörnum. Markmið slíkrar fræðslu er að nemendur séu meðvitaðir um skaðsemi tóbaksnotkunar, áfengisneyslu og notkunar annarra vímuefna ásamt því að þeir taki afstöðu gegn einelti og öðru ofbeldi og hverskonar mismunun. Fjallað er um neyslu og fíkn, tengsl hugar og líkama og ýmsa félagslega þætti sem stýra hegðun og athöfnum einstaklinga og hafa áhrif á heilbrigði og lífsstíl. Leitast er við að þjálfa nemendur í að huga að hollustu og næringarinnihaldi, hvort sem við á um eigin neyslu eða þess hráefnis sem unnið er með, gæta að vinnuaðstæðum m.t.t. forvarna, áhættu, hreinlætis og slysa.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • Með auknu símati í skólanum er lögð áhersla á vinnu nemenda þar sem reynir á alla þætti læsis, tjáningar og samskipta. Í skólastarfinu reynir á samskiptahæfni og samskipti nemenda t.d. í félagslífinu og við alls kyns verkefnavinnu. Má þar nefna kynningar nemenda á verkefnum sínum, í gegnum samræðu í para- og hópavinnu, í umræðum og með þátttöku í félagsstörfum. Nemendur fá þjálfun í að svara spurningum á málefnalegan hátt og að rökstyðja skoðanir sínar og niðurstöður í ræðu og riti. Með aukinni þjálfun, stíganda í námi og sérhæfingu verður orðaforði nemenda fjölbreyttari og málið blæbrigðaríkara.
Lýðræði og mannréttindi:
  • Í skólanum er stuðlað að því að gera nemendur að virkum og ábyrgum þátttakendum í lýðræðissamfélagi t.d. með nemendaþingi þar sem nemendum er skipt í smærri hópa og þeir fá ákveðið viðfangsefni til að fjalla um, mynda sér skoðun á og skila tillögum/ábendingum um hvað vel er gert eða betur má fara. Ýmis málefni geta verið í brennidepli t.d. skólareglurnar, félagsstörfin, aðbúnaður og þjónusta. Í skólanum er kennslumat lagt fyrir nemendur en í slíku mati meta nemendur kennslu, aðstöðu og námsefni í þeim áföngum sem þeir eru skráðir í. Niðurstöðurnar eru notaðar til að bæta gæði kennslunnar. Að auki er lögð fyrir nemendur þjónustukönnun en þar er lagt upp með að meta ýmsa þjónustu sem skólinn veitir nemendum t.d. þjónustu bókasafns, skrifstofu, mötuneytis o.s.frv. Að auki eiga nemendur fulltrúa í skólaráði og skólanefnd, í skólanum er einnig starfrækt hagsmunaráð nemenda og nemendafélag. Nemendur vinna ýmis verkefni sem fjalla t.d. um mannréttindi, siðferðisvitund og lýðræði og eru hvattir til umburðarlyndis og virðingar fyrir mismunandi lífsgildum. Með virkri þátttöku í skólastarfinu, náminu og með þeim tækifærum sem nemendum bjóðast til áhrifa þjálfast þeir í því að vera virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðissamfélagi.