Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Grunnám matvæla- og ferðagreina 19-424-1-2 | grunnnám starfsgreina | hæfniþrep 1 |
Lýsing: | Grunnnám matvæla- og ferðagreina (GMF) er námsbraut með námslokum á fyrsta þrepi. Námið er ætlað nemendum sem stefna að frekara námi í matvæla- og ferðagreinum. Námið felur í sér almenna menntun þar sem lögð er áhersla á alhliða þroska nemanda og lýðræðislega virkni. Námið er undirbúningur fyrir iðnnám í bakstri, framreiðslu, kjötiðn og matreiðslu og en einnig er það undirbúningur fyrir frekara nám í matartækni og/eða í ferðaþjónustu. Námið er tveggja anna nám 64 einingar, sem skiptist í bóklegar og verklegar faggreinar sem og kjarnagreinar í íslensku, ensku og stærðfræði. Í framhaldi af brautinni geta nemendur farið í frekara nám að eigin vali. Áfanga af brautinni er hægt að meta inn á aðrar námsbrautir. Nemendur fá bæði starfskynningu í ferða- og matvælagreinum á vinnustöðum og fara í vinnustaðanám að eigin vali. Námið veitir tveggja mánaða styttingu á verknámi í iðngrein þeirri sem nemandi velur sér. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Nemendur skulu hafa lokið grunnskólaprófi eða ígildi þess. Nemendur sem náð hafa hæfnieinkunn B eða hærra í kjarnagreinum við lok grunnskóla eða lokið fyrsta þreps áfanga innritast í annars þreps áfanga í þeim greinum. |
Skipulag: | Námið er bæði bóklegt og verklegt. Mestur hluti þess fer fram í skóla en þó fara nemendur í 48 kennslustundir í starfskynningu/starfsþjálfun á vinnustað. Þar öðlast nemendur þekkingu og leikni til að takast á við mismunandi störf sem tengjast ferða- og matvælagreinum. Almennir bóklegir áfangar í skóla eru íslenska, enska og stærðfræði og eru þeir á fyrsta þrepi. Hafi nemandi náð lágmarskárangri úr grunnskóla tekur hann áfanga af öðru þrepi eftir því sem við á. Nemendur taka einnig tvo íþróttaáfanga. Nemendur taka fagtengda áfanga í innraeftirliti og matvælaöryggi, næringarfræði, öryggismál og skyndihjálp, tölvuáfanga og örverufræði. Kjörsviðið er 40 feiningar og skiptist í fag- og örverufræði matvælagreina, verklega færniþjálfun ferða- og matvælagreina, verklega þjálfun á vinnustað og tvo valáfanga sem eru á sérsviði hvers skólasvæðis. Í áfanganum verkleg þjálfun á vinnustað fara nemendur í starfskynningar þar sem þeir fá tækifæri til að kynnast betur þeim ferða- og matvælagreinum sem þeir hafa áhuga á. Nemendur sem ljúka þeim áföngum sem eru á brautinni fá metnar sex vikur úr vinnustaðaþætti námsins sem starfsþjálfun á þeirri námsbraut sem þeir velja í framhaldi af grunnámsbrautinni. |
Námsmat | Námsmat brautarinnar er fjölþætt. Fer það fram með skriflegum-, munnlegum- og verklegum prófum, verkefnamati, ástundun o.fl. Hvað varðar verklega þátt námsins á vinnustað fá nemendur hann metinn út frá gefnum forsendum. |
Starfsnám: | Lengd starfskynningar er 18-24 klst. á hvorri önn. Hún fer fram í fyrirtækjum sem hafa fjölbreytta faglega færni tengda þeim störfum sem um ræðir. Hér er átt við fyrirtæki í ferðaþjónustu s.s. ferðaskrifstofur, hótel, kjötvinnslur, gróðurhús, fiskvinnslu, bakarí, veitingastaði o.fl. Það er á ábyrgð hvers skóla að skipuleggja starfskynningar nemenda þannig að þeir fái tækifæri til að kynnast ólíkum störfum í ferða- og matvælagreinum. Í þeim fyrirtækjum sem í hlut eiga, er gerð krafa um að iðnmeistari eða sveinn í iðngrein annist starfskynninguna. |
Reglur um námsframvindu: | Einingafjöldi brautar eru 64 einingar. Nemandi þarf að ná einkunninni 5 til að standast áfanga brautarinnar. Námstími GMF eru 2 annir. Nemandi þarf að ljúka undanförum til þess að halda áfram námi í hverri grein fyrir sig þar sem við á. |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
64 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Bundið áfangaval
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " | 1 af 13 |
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Nei, frjálst val er ekki leyft