Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Náttúrufræðabraut (Staðfestingarnúmer 140) 16-140-3-6 stúdent hæfniþrep 3
Lýsing: Náminu er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda. Brautin býr nemendur m.a. undir framhaldsnám í háskóla í raunvísindum, stærðfræði, verkfræði og heilbrigðisgreinum.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Inntökuskilyrði á náttúrufræðabraut er að hafa lokið grunnskólaprófi. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið 1. þreps áföngum í þessum greinum.
Skipulag: Nám á náttúrufræðabraut er fyrst og fremst bóklegt og fer fram í skólanum. Á brautinni er lögð áhersla á kjarnagreinar ásamt sérhæfingu í náttúrufræðagreinum. Frjálsu vali þarf nemandinn að haga þannig að skilyrðum aðalnámskrár um þrepaskiptingu náms til stúdentsprófs sé fullnægt.
Námsmat Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun kennara. Matið er ýmist samsett úr símati og lokaprófi eða eingöngu símati. Nánari tilhögun námsmats er í höndum kennara. Í upphafi hverrar annar skal nemendum kynnt kennsluáætlun og námsmarkmið svo og tilhögun námsmats hvers áfanga.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Lágmarkseinkunn er 5 í öllum áföngum. Ef nemandi ætlar að ljúka brautinni á 6 önnum þarf hann að ljúka 33-34 einingum á hverri önn.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • afla sér almennrar þekkingar á sviði náttúrufræðagreina
  • takast á við frekara nám í raunvísindum, heilbrigðisgreinum, verkfræði eða skyldum greinum á háskólastigi
  • afla sér upplýsinga, meta þær, vinna úr þeim og túlka
  • koma hugmyndum sínum á framfæri á margvíslegan hátt, s.s. í ritgerðum, skýrslum og framsögn
  • lesa og setja fram rannsóknarniðurstöður með gagnrýnu hugarfari
  • taka þátt í upplýstri umræðu um ýmis mál er tengjast samspili vísinda, tækni og samfélags
  • nálgast verkefni á faglegan og sjálfstæðan hátt
  • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum, gagnrýni í hugsun og hæfni til samstarfs

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

200  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Kjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Bundið pakkaval

Spænska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Þýska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi pakka sem nemendur velja: 1 af 2

Bundið áfangaval

5 af 10
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 5 af 10

Bundið áfangaval

5 af 15
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi eininga (framhaldsskólaeininga) sem nemendur þurfa að velja: " 5 af 15

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Nemendur taka 53 einingar í frjálsu vali. Þeir þurfa að gæta þess að uppfylla skilyrði aðalnámskrár um þrepaskiptingu námsgreina á stúdentsprófsbrautum. Nemendur taka að lágmarki 35 einingar í bóklegum greinum í frjálsu vali, þar af 20 einingar í stærðfræði, tölvu- og/eða raungreinum.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • nemendur læra að skilja og túlka texta, gögn og upplýsingar af ýmsu tagi
  • nemendur læra að túlka upplýsingar og setja þær fram
  • nemendur eru þjálfaðir í heimildaleit og að vera gagnrýnir á heimildir
  • nemendur læra að vera gagnrýnir á tölulegar upplýsingar í fjölmiðlum og fræðigreinum
  • nemendur geti setji fram og notað tölulegar upplýsingar í röksemdafærslur
Námshæfni:
  • nemendur vinna með styrkleika sína til að byggja upp jákvæða sjálfsmynd
  • nemendur læra að setja sér raunhæf markmið og meta hvort þau hafi náðst
  • nemendur taka ábyrgð á eigin námi
  • nemendur læra að færa rök fyrir máli sínu á gagnrýninn hátt
  • nemendur læra sjálfstæði í vinnubrögðum
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • hvetja nemendur til að sjá nýjar og ólíkar hliðar á sama veruleika
  • hvetja nemendur til að sýna frumkvæði og áræðni og nýta þekkingu sína á frumlegan hátt
  • flétta tjáningu og sjálfstæðri verkefnavinnu saman við nám
  • veita nemendum tækifæri til skapandi starfs
  • gera nemendur meðvitaða um styrkleika sína þannig að þeir geti nýtt þá í vinnu og námi
Jafnrétti:
  • nemendum gefinn kostur á að nýta hæfileika sína án fordóma
  • nota fjölbreyttar kennsluaðferðir til að mæta þörfum ólíkra nemenda
  • nemendur kynnist ýmsum tegundum jafnréttis, s.s. kynjajafnrétti, kynþáttajafnrétti, jöfnum rétti fatlaðra og ófatlaðra og jafnan jarðarbúa til auðlinda jarðarinnar
Menntun til sjálfbærni:
  • aðstoða nemendur að sjá sig í víðu samhengi, sem hluta af náttúru, menningu og sögu
  • hvetja nemendur til hófsemi og nægjusemi
  • hvetja nemendur til að láta sig varða um umhverfið og velferð komandi kynslóða
  • virkja nemendur til ábyrgðar gagnvart samfélaginu og umhverfi sínu
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • nemendur kynnast hinum ýmsu menningarheimum og verða læsir á ólík samfélög
  • nemendur auka orðaforða sinn til að afla sér upplýsinga á ólíkum tungumálum
  • nemendur geta tjáð sig í ræðu og riti á erlendum tungumálum
  • skapa aðstæður sem hvetja nemendur til lestrar á erlendum tungumálum
Heilbrigði:
  • nemendur nýta hæfileika sína og fá hrós fyrir það sem vel er gert
  • nemendur eru hvattir til heilbrigðra lífshátta
  • byggja upp og styrkja jákvæða sjálfsmynd nemenda
  • hvetja nemendur til heilsusamlegs lífsstíls í tengslum við heilsueflandi framhaldsskóla
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • örva nemendur til að tjá sig í ræðu og riti og skapa aðstæður sem hvetja til lestrar
  • auka orðaforða nemenda og fjölga hugtökum sem þeir hafa á valdi sínu
  • efla skilning nemenda á fjölbreyttu námsefni og auka hæfni þeirra til að túlka það og setja í víðara samhengi
  • nemendur vinna að fjölbreyttum verkefnum þar sem þeir kynnast ýmsum hliðum á læsi
Lýðræði og mannréttindi:
  • gæta þess að ákvarðanir um skólastarfið styðjist við málefnaleg rök og ástæður sem allir fá tækifæri til að gagnrýna og ræða
  • hvetja alla nemendur til virkni í félagslífi, gefa þeim kost á að hafa áhrif á skólasamfélagið og gera þeim ljóst hvernig þeir geta gert það
  • hvetja alla nemendur til að láta sig varða um almannahag, mannréttindi og málefni samfélagsins nemendur öðlast hæfni í samskiptum við aðra í gegnum hópvinnu