Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Sérnámsbraut (Staðfestingarnúmer 500) 21-500-1-12 starfsbraut hæfniþrep 1
Lýsing: Sérnámsbraut er fyrir nemendur sem hafa verið í námsverum eða í sérdeildum í grunnskólum og/eða haft aðlagað námsúrræði í almennum bekkjum grunnskóla. Nemendur þurfa að hafa viðurkennd greiningargögn til að komast inn á brautina. Markmið sérnámsbrautar er að undirbúa nemendur undir lífið; þátttöku í atvinnulífinu, sjálfstæða búsetu og/eða frekara nám. Nemendahópurinn er breiður og námið og/eða hæfniviðmiðin eru einstaklingsmiðuð. Unnið er út frá styrkleikum hvers og eins og áhersla er á að efla sjálfsmynd nemenda. Að námi loknu eiga nemendur að hafa fengið almennan undirbúning fyrir lífið og í grunnþáttum menntunar. Námið er á fyrsta þrepi, þ.e. almenn og hagnýt þekking sem miðast við stöðu hvers og eins. Ekkert er því til fyrirstöðu að nemandi geti tekið áfanga á öðrum námsþrepum og námsbrautum, þ.e. ef þeir hafa áhuga og hæfni til þess. Nám á sérnámsbraut miðast við 8 samfelldar annir frá útskrift úr grunnskóla, þar sem námið er einstaklingsmiðað geta áherslur og þátttaka í áföngum verið mismunandi á tímabilinu. Leitast verður við að hafa námið sem fjölbreyttast og þverfaglegt innan brautar og í samstarfi við aðrar brautir.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa viðurkennd greiningargögn um fötlun skv. lögum um málefni fatlaðra nr. 59/1992.
Skipulag: Námstíminn miðast við átta annir. Nám á brautinni er blanda af bóklegu og verklegu námi. Áhersla er á að styrkja náms-, starfs-, og félagslega stöðu nemenda ásamt samskiptahæfni og sjálfstrausti. Námið er einstaklingsmiðað og aðlagað að hverjum og einum og horft er til styrkleika og áhugasviðs.
Námsmat Í sumum tilvikum er nemandi bæði í almennum áföngum og námi á sérnámsbraut, og er þá um blandað mat að ræða. Námsmatið inniheldur fjölþættar aðferðir, s.s leiðsagnarmat, jafningjamat, verkefnaskil, virkni í kennslustundum, mæting, sjálfsmat, ástundun og próf.
Starfsnám: Starfsnám getur farið fram innan skólans eða utan. Allir nemendur fara í áfanga í starfsnámi sem eru fjölbreyttir og mismunandi. Nemendur kynnast vinnumarkaðnum, störfum/starfsheitum, réttindum og skyldum og mikilvægi góðra samskipta á vinnustað.
Reglur um námsframvindu: Námið á sérnámsbrautinni er einstaklingsmiðað. Hver nemandi er með sína einstaklingsnámskrá. Við skipulag námsins er tekið mið af óskum, áhugasviði og möguleikum hvers nemanda til náms. Einingafjöldi til útskriftar er mismunandi og fer eftir einstaklingsnámskrá hvers nemanda.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • gera sér grein fyrir eigin styrk- og veikleikum
  • taka upplýstar ákvarðanir er varða líf sitt
  • lifa eins sjálfstæðu lífi og mögulegt er
  • skilja mikilvægi þess að neyta hollrar fæðu og stunda reglulega hreyfingu
  • gera sér grein fyrir eigin fjárhag og meðferð fjármuna
  • skoða og meta möguleika á frekara námi og störfum
  • meta hvenær þörf er á að leita sér aðstoðar hjá viðeigandi fagaðila

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

120  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Brautarkjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Nemendur velja áfanga sem höfða til áhugasviðs þeirra.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • Mikil áhersla er lögð á að nemendur fái fjölbreytta þjálfun í meðferð talna og upplýsinga af ýmsum gerðum. Nemendur þjálfast í að lesa, meta og skilja tölur og myndrænar upplýsingar og nýta þær sér til gagns. Talna- og upplýsingalæsi nemenda er aukið eftir getu hvers og eins í flestum áföngum. Gerðar eru kröfur um fjölbreytt vinnubrögð, þ.e. að nemendur séu læsir á upplýsingar frá ólíkum miðlum, geti nýtt sér margvíslega tækni í upplýsingaleit, aflað gagna og nýtt sér upplýsingarnar á gagnrýninn hátt. Nemendur fá þjálfun í að lesa, meta, túlka og kynna þær upplýsingar sem þeir afla sér.
Námshæfni:
  • Á námstímanum er unnið að því að efla sjálfstæð vinnubrögð nemenda og gera þá ábyrga í náminu. Kennslu- og námsaðferðir eru fjölbreyttar og nemendur þjálfast í að vinna ólík verkefni sem reyna á ýmsa hæfni. Þeir fá þjálfun í að deila þekkingu sinni með öðrum og er það gert t.d. í gegnum hópavinnu, paravinnu, kynningar á verkefnum, samvinnunám og fleira. Með stigvaxandi kröfum í námi lærir nemandi að takast á við ný verkefni og áskoranir, yfirstíga hindranir og nýta fyrri reynslu, þekkingu og skilning við úrlausn nýrra verkefna.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • Í gegnum skólastarfið nýta nemendur sköpunarkraft sinn á margvíslegan hátt í lífi og starfi innan skólans og utan. Í skólanum eru settar upp leiksýningar, listsýningar, söngkeppnir og ýmsar skemmtanir sem krefjast þess að nemendur sýni frumkvæði, sjálfstæði og skapandi hugsun og nýti þekkingu sína til að skapa og búa til eitthvað nýtt og draga lærdóm af. Félagslífið skipar þar stóran sess og má helst nefna leiklist og tónlist í því sambandi. Í gegnum félagslífið öðlast nemendur skilning á tengslum menningar og listar við atvinnusköpun og samfélagsþróun. Í náminu vinna nemendur verkefni og skila þeim af sér með ólíku sniði t.d. sem myndbandi, vefsíðu, veggspjaldi, bæklingi, úrklippum, munnlegri kynningu, ferilmöppu eða smásögu. Þá reynir á frumkvæði og skapandi hugsun og að nemendur geti miðlað þekkingu sinni og hæfni á skapandi hátt og með ólíkum leiðum.
Jafnrétti:
  • Í skólanum er í gildi jafnréttisáætlun sem segir að stuðla skuli að því að hver einstaklingur nýti hæfileika sína og krafta sem best, óháð andlegu og líkamlegu atgervi, kynferði, kynhneigð, litarhætti, þjóðerni, trú, búsetu eða efnahag. Jafnframt er stefnt að því að tryggja hverjum og einum viðfangsefni og menntun við hæfi. Lögð er áhersla á að starfið á brautinni stuðli að jöfnum rétti kynja til náms og að nemendur séu hvattir til að velja sér nám eftir áhuga. Með þessu er leitast við að gera nemendur meðvitaða um áhrif fyrirmynda og staðalmynda á eigin ímynd og lífsstíl og að þeir geti myndað sér gagnrýna skoðun á viðteknum hugmyndum í samfélaginu. Nemendur vinna ýmis verkefni sem tengjast jafnrétti í víðum skilningi t.d. fordómum, fjölmenningu, kynhneigð, fötlun og trúarbrögðum. Þá læra nemendur að greina áhrif ýmissa þátta á líf einstaklinga og hópa, t.d. stéttar, trúarbragða, þjóðernis, kynhneigðar, litarháttar, búsetu o.fl.
Menntun til sjálfbærni:
  • Í öllu skólastarfinu er lögð áhersla á sjálfbærni og sjálfbæra hugsun. Unnið er að því að nemendur verði virkir og ábyrgir borgarar bæði í samfélaginu og umhverfi sínu. Lögð er áhersla á að nemendur fái þekkingu á hvernig vistkerfi jarðar setur manninum takmarkanir, sanngjarna skiptingu auðlinda og skynsamlega nýtingu þeirra. Nemendur vinna með upplýsingar um eigin neysluvenjur og setja í samhengi við nýtingu náttúruauðlinda. Einnig taka þeir þátt í samræðum sem varða umhverfisvitund og sjálfbærni á ábyrgan og rökrænan hátt. Lögð er áhersla á að nemendur virði mannréttindi, skoðanir annarra og umhverfi sitt.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • Nemendur eru hvattir til að kynna sér erlend tungumál og tjá sig eftir bestu getu. Nemendur fá fjölbreytt verkefni til að vinna með, tjá sig bæði munnlega og skriflega um námsefnið og auka orðaforða sinn um leið. Einnig er lögð rík áhersla á samræðu og tjáningu í ræðu og riti t.d. um bókmenntir og kvikmyndir. Í tungumálanáminu er leitast við að veita nemendum innsýn í ólíka menningarheima og siði sem einkennir þau landsvæði þar sem viðkomandi mál er talað. Skólinn leitast við að taka þátt í samskiptum við skóla og skyldar stofnanir erlendis og er lögð áhersla á að nemendur taki þátt í erlendum samstarfsverkefnum séu slík verkefni í boði.
Heilbrigði:
  • Skólinn tekur þátt í verkefni um heilsueflandi framhaldsskóla. Lögð er áhersla á heilsusamlegan lífsstíl, næringu, hreyfingu og geðrækt. Nemendur eru ábyrgir fyrir eigin heilsu, líkamlegri og andlegri og taka ábyrga afstöðu til eigin velferðar og heilbrigðis. Að loknu námi þekkja nemendur gildi reglulegrar hreyfingar og mikilvægi fjölbreyttrar og næringarríkrar fæðu. Við skólann er markvisst unnið að fræðslu sem tengist forvörnum. Markmið slíkrar fræðslu er að nemendur séu meðvitaðir um skaðsemi tóbaksnotkunar, áfengisneyslu og notkunar annarra vímuefna ásamt því að þeir taki afstöðu gegn einelti og öðru ofbeldi og hverskonar mismunun. Fjallað er um neyslu og fíkn, tengsl hugar og líkama og ýmsa félagslega þætti sem stýra hegðun og athöfnum einstaklinga og hafa áhrif á heilbrigði og lífsstíl.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • Með auknu símati í skólanum er lögð áhersla á vinnu nemenda þar sem reynir á alla þætti læsis, tjáningar og samskipta. Í skólastarfinu reynir á samskiptahæfni og samskipti nemenda t.d. í félagslífinu og við alls kyns verkefnavinnu. Má þar nefna kynningar nemenda á verkefnum sínum, í gegnum samræðu í para- og hópavinnu, í umræðum og með þátttöku í félagsstörfum. Nemendur fá þjálfun í að svara spurningum á málefnalegan hátt og að rökstyðja skoðanir sínar og niðurstöður í ræðu og riti. Með aukinni þjálfun, stíganda í námi og sérhæfingu verður orðaforði nemenda fjölbreyttari og málið blæbrigðaríkara.
Lýðræði og mannréttindi:
  • Í skólanum er stuðlað að því að gera nemendur að virkum og ábyrgum þátttakendum í lýðræðissamfélagi t.d. með nemendaþingi þar sem nemendum er skipt í smærri hópa og þeir fá ákveðið viðfangsefni til að fjalla um, mynda sér skoðun á og skila tillögum/ábendingum um hvað vel er gert eða betur má fara. Ýmis málefni geta verið í brennidepli t.d. skólareglurnar, félagsstörfin, aðbúnaður og þjónusta. Í skólanum er kennslumat lagt fyrir nemendur en í slíku mati meta nemendur kennslu, aðstöðu og námsefni í þeim áföngum sem þeir eru skráðir í. Niðurstöðurnar eru notaðar til að bæta gæði kennslunnar. Að auki er lögð fyrir nemendur þjónustukönnun en þar er lagt upp með að meta ýmsa þjónustu sem skólinn veitir nemendum t.d. þjónustu bókasafns, skrifstofu, mötuneytis o.s.frv. Að auki eiga nemendur fulltrúa í skólaráði og skólanefnd, í skólanum er einnig starfrækt hagsmunaráð nemenda og nemendafélag. Nemendur vinna ýmis verkefni sem fjalla t.d. um mannréttindi, siðferðisvitund og lýðræði og eru hvattir til umburðarlyndis og virðingar fyrir mismunandi lífsgildum. Með virkri þátttöku í skólastarfinu, náminu og með þeim tækifærum sem nemendum bjóðast til áhrifa þjálfast þeir í því að vera virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðissamfélagi.