Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Almennt meistaranám (Staðfestingarnúmer 413) 20-413-4-11 iðnmeistaranám hæfniþrep 4
Lýsing: Iðnmeistarar sem verktakar eða framleiðendur gegna ólíkum störfum og hlutverkum. Þeir vinna við mismunandi aðstæður allt eftir eðli starfseminnar, stærð fyrirtækis og stöðu innan þess. Í nútímasamfélagi breytast störf hraðar en áður, störf úreldast og ný störf fæðast. Stöðugt meiri þörf er á nýsköpun í öllum greinum, valdi á tækniþekkingu hvers tíma ásamt því að huga verður að öryggi, umhverfi og sjálfbærni rekstrar. Öll fyrirtæki þurfa að móta stefnu og gera áætlanir til lengri og skemmri tíma. Áætlanagerð hvílir oft á herðum iðnmeistarans, en þær geta m.a. varðað fjárfestingar, starfsfólk, öryggis- og umhverfismál, framleiðslu og þjónustu, rekstur, fjármál, sölu- og markaðsmál og gæðaþróun. En vegna hraðra framfara verða sköpun, hugvit og sveigjanleiki meistara mikilvægari þættir í náminu en áður svo að hann geti brugðist við síbreytilegum aðstæðum í rekstri. Hvort sem iðnmeistarinn annast sjálfur alla þætti í stjórnun og rekstri fyrirtækisins eða ræður aðra til þess er endanleg ábyrgð á hans herðum. Hann þarf því að búa yfir grunnþekkingu og yfirsýn varðandi rekstur og vera fær um að leggja sjálfstætt mat á einstaka þætti. Iðnmeistarinn er verkefnis/framleiðslustjóri í fyrirtæki, annast áætlanagerð fyrir tiltekin verk og hefur umsjón og eftirlit með þeim. Hann áætlar heildarumfang og tímamörk verks, greinir það í þætti, áætlar efnis- og mannaflaþörf, skilgreinir kröfur um gæði og afköst og ber ábyrgð á að verki ljúki á tilsettum tíma með tilskildum gæðum og innan kostnaðarmarka. Meistarinn sem atvinnurekandi ber auk þess ábyrgð á að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustað sé í samræmi við lög og staðla. Huga verður að samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins. Meistari þarf að móta stefnu fyrirtækisins í umhverfismálum og hvernig reksturinn geti verið sem sjálfbærastur. Iðnmeistarinn ber ábyrgð á vöruþróun, gæðum vöru og þjónustu gagnvart viðskiptavinum fyrirtækisins, hvernig komið er fram við þá og hvernig er farið að óskum þeirra. Hann er ábyrgur fyrir því að farið sé að lögum. Hann þarf að vita hvernig hann nær til viðskiptavina og allir starfsmenn fyrirtækisins þurfa að vera upplýstir um áherslur þess hvað varðar viðskiptasiðferði. Kennsla og þjálfun nemenda á vinnustað er meðal mikilvægustu viðfangsefna iðnmeistara. Meistari gerir samninga um vinnustaðanám/starfsþjálfun við iðnnema í iðngrein sinni og ber ábyrgð á að þeir fái þjálfun í samræmi við lög, reglur og námskrá. Hann kennir nemanum vinnubrögð, meðferð efna, tækja og forrita, veitir handleiðslu og fylgist með framvindu þjálfunar. Á sama hátt metur meistarinn endurmenntunar- og þjálfunarþörf annarra starfsmanna, leiðbeinir nýliðum og kennir starfsmönnum nýjungar eða sér til þess að það verði gert.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Til að innritast á brautina þarf nemandi að hafa staðist sveinspróf í einhverri af eftirfarandi iðngreinum: bifreiðasmíði, bifvélavirkjun, bílamálun, bókbandi, flugvirkjun, grafískri miðlun, gull -og silfursmíði, hársnyrtiiðn, húsgagnabólstrun, húsgagnasmíði, kjólasaum, klæðskurði, ljósmyndun, málaraiðn, netagerð, prentun, skósmíði, skrúðgarðyrkju, snyrtifræði, söðlasmíði, tannsmíði, úrsmíði, veggfóðrun og dúkalögn, matreiðslu, kjötiðn, framreiðslu, bakaraiðn.
Skipulag: Meistaraskólinn er kenndur í fjarnámi.
Námsmat Lögð er áhersla á leiðsagnarmat og símat sem gefur nemendum uppbyggilega og hvetjandi leiðsögn og metur vinnuframlag þeirra jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat er fjölbreytt og aðferðir taka mið af fjölbreyttum kennsluháttum, námsmarkmiðum og hæfni nemenda. Námsmat á brautinni er fólgið í símati og lokaprófi eða eingöngu símati. Nánari tilhögun námsmats s.s. skiladagar verkefna og vægi kemur fram í námsáætlun áfanga.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Til að standast námsmat í áfanga þarf lágmarkseinkunnina 5. Reglur um námsframvindu eru birtar í skólanámskrá.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • stofna og reka fyrirtæki í íslensku atvinnulífi í samræmi við lög og reglur.
  • nýta fjölþjóðasamstarf og fjölþjóðlega viðskiptasamninga í rekstri í samræmi við þær reglur sem gilda á EES svæðinu.
  • sjá um starfsmannahald, skipuleggja framleiðslu og framkvæmdir.
  • Sjá um að jafnréttisáætlun sé virk og geta metið árangur hennar.
  • tileinka sér og nýta þær rannsóknir og nýjungar sem tilheyra rekstri í greininni.
  • beita útreikningum og sölufræðum við innkaup á vörum til rekstursins.
  • færa bókhald, greina það og nýta upplýsingar úr því á gagnlegan hátt.
  • vinna með þau gæðaviðmið sem lögboðin eru í greininni.
  • vinna að vöruþróun og þróun á þjónustu í síbreytilegu rekstrarumhverfi.
  • gera sér grein fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni í rekstri.
  • fylgja eftir markaðáætlun fyrirtækja, mæla árangur, meta stöðu og setja ný markmið.
  • sjá um að stefna um viðskiptasiðferði sé virk og geta metið árangur hennar.
  • skipuleggja þjálfun starfsfólks í sinni iðngrein. Annast skiplagningu náms og þjálfun nemenda í greininni eftir þeim lögum og reglugerðum sem gilda og þeim námskröfum sem gerðar eru hverju sinni.
  • meta námsþarfir nemenda og starfsfólks og velja réttar og viðeigandi aðferðir við leiðsögn. Geti gert heilstæða námsáætlun fyrir nemanda með tilliti til vinnustaðanáms/starfsþjálfunar og samkvæmt þeim viðmiðum sem koma fram í Aðalnámskrá.
  • skipuleggja og halda utan um fjármál fyrirtækis.
  • túlka og greina ársskýrslur og meta stöðu fyrirtækja út frá þeim.
  • reikna tilboð, gera samninga, gera tilboðs- og sölugreiningar ásamt framleiðslu-, sölu- og markaðsáætlanir.
  • gera markaðsgreiningu og kynningaáætlun ásamt því að vinna að áætlun í viðskiptasiðferði fyrir fyrirtækið.
  • nýta verkfæri verkefnastjórnunar við skipulag og úrlausn verkefna.
  • vöruþróun og þróun þjónustu.
  • stjórna framleiðslu- og framkvæmdum.
  • gera greiningu og skipulag öryggis- og umhverfismála, gera skipulag vinnustaða og stjórnunar- og framleiðsluferla með tilliti til reksturs.
  • beita skapandi hugsun við úrlausnir verkefna til að mæta breyttum aðstæðum í síbreytilegu rekstrarumhverfi.
  • gera jafnréttisáætlun fyrir fyrirtækið.

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

38  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Kjarni
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Nei, frjálst val er ekki leyft

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • Í stjórnunar- og rekstraráföngum í meistaranáminu vinna nemendur að fjölbreyttum verkefnum er snúa að útreikningum, bókhaldi, þjónustu og markaðssetningu á afurðum fyrirtækja. Nemendur vinna markaðsáætlanir og læra viðbrögð við breytingum á markaðaðstæðum. Í bókhaldáföngum námsins læra nemendur fjármálalæsi og hvernig beri að halda utan um bókhald fyrirtækja. Þar er unnið með tölulegar upplýsingar sem þarf að hafa í huga við rekstur fyrirtækja.
Námshæfni:
  • Nemendur eru þjálfaðir í að setja sér raunhæf markmið í námi og vinna að þeim. Kennslu- og námsaðferðir eru fjölbreyttar og reyna á ýmsa hæfni. Unnið er sérstaklega með styrkleika nemenda og hvernig megi efla þá. Í öllum áföngum þurfa nemendur að sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og takast á við áskoranir í náminu. Nemendur þurfa stöðugt að meta eigið vinnuframlag og læra þannig að þekkja styrkleika sína og veikleika og setja sér raunhæf markmið. Nemendur vinna í innra tölvukerfi skólans með góðan aðgang að kennara í hverri grein og geta lagt inn til hans fyrirspurnir varðandi þætti er varða áfangann. Með þessu móti fá nemendur endurgjöf frá kennara á meðan á námi í áfanganum stendur.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • Í öllum námsgreinum í meistaranáminu reynir á frumkvæði og skapandi hugsun. Nemendur þurfa að hagnýta þekkingu sína með margs konar verkefnavinnu þar sem m.a. gefst tækifæri á að vinna með raunhæf verkefni úr atvinnulífinu. Í verkefnum reynir á hagnýtingu þekkingar og skapandi hugsun nemenda þar sem þeir skila af sér tillögum, hugmyndum og fullmótuðum verkefnum er snúa að rekstri fyrirtækja.
Jafnrétti:
  • Í skólastarfinu öllu er áhersla á jafnrétti sem byggir á jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun skólans. Áhersla er lögð á fjölbreyttar kennsluaðferðir, kennsluefni og námsmat með það fyrir augum að allir hafi jafna möguleika til að standa sig sem best í náminu. Brýnt er fyrir nemendum að sýna virðingu og virða skoðanir annarra t.d. óháð kyni, bakgrunni eða námslegri getu. Boðið er upp á nám til meistara í fjarnámi þannig að sem flestir geti sótt það óháð búsetu.
Menntun til sjálfbærni:
  • Í öllu skólastarfinu er lögð áhersla á sjálfbærni og sjálfbæra hugsun. Unnið er að því að nemendur verði virkir og ábyrgir borgarar bæði gagnvart samfélaginu og umhverfi sínu. Í öllum áföngum meistaranámsins gefst nemendum kostur á að vinna með raunhæf verkefni úr atvinnulífinu. Með þessu læra þeir að meta eigin vinnubrögð og annarra og æfast í að setja sér raunhæf markmið fyrir þau fyrirtæki sem þeir starfa hjá. Kennslu- og námsaðferðir eru fjölbreyttar og reyna á ýmsa hæfni nemenda. Unnið er sérstaklega með styrkleika nemenda og hvernig megi efla þá. Einnig nota nemendur reynslu sína og þekkingu úr atvinnulífinu til að öðlast dýpri skilning á því efni sem tekið er fyrir í náminu. Með þessu móti er hægt að mennta nemendur til sjálfbærni með markvissum hætti.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • Nemendur eru hvattir til að afla sér upplýsinga á erlendum vefsíðum í fræðibókum og fleiru. Nemendur kynni sér hvernig leiðbeina má og kynna verklag og reglur fyrir erlendum starfsmönnum í íslenskum iðnfyrirtækjum.
Heilbrigði:
  • Nemendur eru hvattir til að tileinka sér heilsusamlegan lífsstíl og jákvæð samskipti þar sem einelti og annað ofbeldi líðst ekki. Í öllum samskiptum við nemendur er áhersla lögð á jákvæðni og hvatningu. Bæði í samskiptum kennara og nemenda og samskiptum nemenda innbyrðis. Með því er stuðlað að félagslegu heilbrigði og betri líðan.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • Í meistaranáminu er gerð krafa um verkefnavinnu nemenda í öllum áföngum. Þar reynir á samskipti og samskiptahæfni ásamt tjáningu í rituðu máli við kynningu niðurstaðna. Nemendur þurfa að geta svarað spurningum á málefnalegan hátt og rökstutt skoðanir sínar og niðurstöður. Við þessa kennsluaðferð skapast tækifæri fyrir skoðanskipti milli nemenda úr reynsluheimi þeirra úr atvinnulífinu sem nýtist öllum þeim er þátt taka í umræðunum. Í öllum áföngum vinna nemendur með raunhæf verkefni og við það kynnast þeir nýjum hugtökum sem tengjast mismunandi þáttum milli áfanganna. Nemendur læra að tileinka sér aðferðir við rekstur og þjálfast í að lesa úr bókhaldsgögnum og efla þannig fjármálalæsi sitt. Í stjórnunar og rekstargreinum læra nemendur um þætti er snúa að réttindum og skildum einstaklingsins gagnvart fyrirtæki svo og réttindum og skildum fyrirtækisins gagnvart starfsmönnum.
Lýðræði og mannréttindi:
  • Í skólanum er stuðlað að því að gera nemendur að virkum og ábyrgum þátttakendum í íslensku samfélagi. Gerð er áfangakönnun sem lögð er fyrir nemendur skólans þar sem þeir láta í ljós álit sitt á skipulagi og innihaldi áfanga, námsefni og kennsluháttum. Í öllum áföngum brautarinnar eru nemendur hvattir til umburðarlyndis og virðingar fyrir mismunandi lífsgildum. Þannig þjálfast nemendur í því að vera virkir og ábyrgir þátttakendur í lýðræðissamfélagi. Í kennslufræðiáfanga meistaranámsins vinna nemendur verkefni sem lúta að réttindum og skyldum einstaklinga og fyrirtækja. Þeir setja m.a. upp drög að skipulagi þess hvernig staðið skuli að móttöku nemanda í verknám og skipuleggja námstíma hans út frá vinnustaðaþætti og skólaþætti.