Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Íþróttafræðibraut (Staðfestingarnúmer 100) 15-100-3-7 stúdent hæfniþrep 3
Lýsing: Á Íþróttafræðibraut er megináherslan á íþróttafræði, íþróttagreinar og þjálfun auk kjarnagreina. Í kjarna brautar er lögð áhersla á eftirfarandi grunnþætti; læsi, sköpun og sjálfbærni auk áherslu á heilbrigði og velferð. Um er að ræða 200 eininga nám til stúdentsprófs. Námstími er að jafnaði 6 annir. Á íþróttafræðibraut er hægt að velja á milli tveggja leiða; félagsfræðasvið eða náttúrufræðisvið. Íþróttafræðibraut er ætlað að veita nemendum undirbúning undir leiðbeinendastörf hjá íþróttafélögum og frekara nám á háskólastigi í íþrótta- , kennslu- og heilsufræðum.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.
Skipulag: Á íþróttafræðibraut er námið í megin dráttum verkefnamiðað bóklegt nám auk verklegra áfanga í íþróttagreinum og þjálfun. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, t.d. fyrirlestrar, leitarnám, hópvinna, verklegar æfingar og rauntengt nám.
Námsmat Námsmatið er fyrst og fremst leiðsagnarmat en formleg lokapróf í lok anna eru ekki til staðar. Vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Í upphafi hverrar annar skal nemendum kynnt kennsluáætlun og námsmarkmið svo og tilhögun námsmats hvers áfanga. Sjá nánar í skólanámskrá.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Lágmarkseiningafjöldi á brautinni eru 200 einingar. Reglur um námsframvindu eru samkvæmt skólareglum. Námstími til stúdentsprófs er 3 ár og þarf nemandi að taka 33-34 einingar á önn til að ljúka á þeim tíma. Nemendur velji áfanga í samráði við náms- og starfsráðgjafa með aðgangsviðmið háskólanna til hliðsjónar. Sjá nánar í skólanámskrá.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • lesa, rita, skilja og tjá sig á viðeigandi máta á íslensku og erlendum tungumálum
  • nýta sér upplýsinga- og samskiptatækni
  • geta átt uppbyggileg samskipti við annað fólk í ræðu og riti
  • sýna umburðarlyndi og ábyrgð með öfluga siðferðisvitund, víðsýni, frumkvæði og sjálfstraust
  • hugsa og starfa á gagnrýninn og skapandi hátt
  • sýna sjálfstæði og taka ábyrgð á eigin námi
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta sér styrkleika sína
  • tileinka sér lífsvenjur sem eru uppbyggilegar fyrir líkamlegt og andlegt heilbrigði
  • virða umhverfi sitt og skilja mikilvægi sjálfbærni
  • meta gildi menningararfsins í heimabyggð og umheiminum
  • taka þátt í atvinnulífinu
  • taka þátt í lýðræðissamfélagi og bera virðingu fyrir ólíkri menningu innan þess
  • takast á við framhaldsnám við hæfi

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

200  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Bundið pakkaval

3. mál spænska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
3. mál þýska
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi pakka sem nemendur velja: 1 af 2

Bundið pakkaval

Félagsfræðasvið
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Náttúrufræðisvið
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi pakka sem nemendur velja: 1 af 2

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Nemendur velja 20 - 22 einingar af vali brautar eða öðrum brautum. Þeir áfangar sem kenndir eru hverju sinni eru í boði.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • með því að, fjalla um efnið í ýmsum áföngum stærðfræði og félags- og raunvísindum
  • með því að, þjálfa markvisst talnalestur og túlkun á tölulegum upplýsingum
  • með því að, afla gagna og kynna niðurstöður á skapandi hátt
Námshæfni:
  • með því að, þjálfa nemendur í að setja sér raunhæf markmið í námi og vinna að þeim
  • með því að, þjálfa nemendur í námstækni ólíkra námsgreina
  • með því að, taka fyrir námshæfni og námstækni á fyrstu önn nemenda í skólanum í lífsleikniáfanga
  • með því að, þjálfa nemendur sérstaklega í námstækni og vinnubrögðum félags- og raunvísinda
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • með því að gera kröfu um að verkefnum sé skilað á fjölbreyttan hátt
  • með því að leggja áherslu á myndræn skil ekki síður en rituð
  • með því að, leggja áherslu á meðferð heimilda og reglur um höfundarrétt
  • með því að, kenna frumkvöðlafræði
  • með því að, fara í vettvangsferðir á vettvang leiklistar, félagsfræða og íþrótta
Menntun til sjálfbærni:
  • með því að, fjalla sérstaklega um málefnið í tilteknum áföngum skólans
  • með því að, vera þátttakandi í verkefninu skólar á grænni grein - græn fáni
  • með því að, halda á lofti gagnrýnni umræðu um umhverfi, samfélag, náttúru og sameiginlega ábyrgð
  • með því að, fjalla um jöfnuð innan kynslóða og á milli kynslóða
  • með því að, gera nemendur meðvitaða um neyslu og nýtingu auðlinda jarðar
  • með því að, virkja nemendur í þeirri hugsun um að flokkun á sorpi er nauðsynleg, en einnig hvernig er hægt að minnka neyslu
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • með því að, kenna erlend tungumál á fjölbreyttan máta
  • með því að, stuðla að því að tjáning og samskipti í tilteknum tímum fari fram á erlendu tungumáli
  • með því að, nemendur afli sér upplýsinga á erlendum tungumálum í tilteknum áföngum
  • með því að, nemendur kynnist menningu í þeim löndum sem tungumálið er notað
Heilbrigði:
  • með því að, vera hluti af Heilsueflandi framhaldsskóla
  • með því að, gera nemendum skylt að sækja líkamsrækt, innan veggja skólans eða utan
  • með því að, vera með virka eineltisáætlun
  • með því að, vera í góðu samstarfi við nemendafélag skólans
  • með því að, vera þátttakandi í forvarnarhópi sveitarfélagsins
  • með því að, efla sjálfstraust nemandans með leiðsagnar-, jafningja- og sjálfsmati
  • með því að, efla sjálfstæði nemandans með ýmis konar verkefnum í staðinn fyrir fyrirfram ákveðin forskriftar verkefni
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • með því að, leggja áherslu á íslenskt samfélag í íslenskuáföngum þar sem íslenskar bókmenntir eru lesnar
  • með því að, nemendur lesi efni í ýmsum námsgreinum og öðlist þannig bæði grunnþekkingu á viðkomandi sviði og fái yfirsýn sem gerir þá að betri lesendum á öllum sviðum
  • með því að, leggja áherslu á hópavinnu, að nemendur færi rök fyrir skoðunum sínum og haldi kynningar á íslensku
  • með því að, nemendur kynnist blæbrigðaríkum og fjölbreyttum orðaforða í gegnum lestur bókmennta
  • með því að, nemendur taki þátt í alls kyns verkefnavinnu þar sem reynir á samskipti og samskiptahæfni nemenda
Lýðræði og mannréttindi:
  • með því að, fjalla um efnið í tilteknum áföngum í skólanum
  • með því að, kennarar ástundi lýðræðisleg vinnubrögð þar sem því er við komið
  • með því að, stjórnendur ástundi lýðræðisleg vinnubrögð þar sem því er við komið
  • með því að, leggja áherslu á virðingu í framkomu og samskiptum allra aðila innan skólans
  • með því að, leggja áherslu á hópavinnu og jákvæð samskipti í verkefnavinnu
  • með því að, leggja ríka áherslu á að nemendur og kennarar tileinki sér lýðræðislega samræðu í daglegu starfi
  • með því að, bera virðingu fyrir fjölbreytileika mannfólksins
Jafnrétti:
  • með því að, skapa jafnrétti til náms, m.a. með því að bjóða upp á nemendagarða
  • með því að, bjóða upp á fjölbreytt námsframboð
  • með því að, fjalla um fjölmargar hliðar jafnréttis í tilteknum áföngum
  • með því að, fjalla um staðalmyndir, kynímyndir, kyn og kyngervi í tilteknum áföngum
  • með því að, koma fram við alla af virðingu og jafnræði