Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Opin stúdentsbraut (Staðfestingarnúmer 566) 24-566-3-6 | stúdent | hæfniþrep 3 |
Lýsing: | Á opinni stúdentsbraut er lögð áhersla á gott almennt nám og þekkingu. Nemendur taka 120 eininga kjarna. Þeir velja síðan 80 einingar úr öllu námsframboði skólans. Þær einingar geta verið í bóklegum, verklegum og eða listgreinaáföngum. Opinni braut er ætlað að veita nemendum menntun sem þeir geta sniðið eftir markmiðum sínum og veitir aðgang að því háskólanámi sem þeir stefna á. Nemendur þurfa að skipuleggja nám sitt skv. aðgangsviðmiðum námsleiða sem háskólastigið hefur gefið út. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Nemendur með A, B+, B, C+ og C í kjarnafögum á grunnskólaprófi geta innritast á námsbrautina. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum. |
Skipulag: | Námsbrautin skiptist í kjarna og frjálst val. Kjarninn samanstendur af áföngum sem nemendur á öllum stúdentsbrautum taka . Gæta þarf að því að kröfum um fjölda eininga á hæfniþrepi sé fullnægt. - Einingar á fyrsta hæfniþrepi mega vera að hámarki 33%. - Einingar á öðru hæfniþrepi mega vera að hámarki 50%. - Einingar á þriðja hæfniþrepi þurfa að vera að lágmarki 17%. |
Námsmat | Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Lokanámsmat áfanga byggir m.a. á lokaprófi, mætingu, ástundun, verkefnaskilum, skyndiprófum, ritgerðum og sjálfs- og jafningjamati. |
Starfsnám: | |
Reglur um námsframvindu: | Lágmarkseinkunn er 5 í öllum áföngum. Meðalnámstími er 6 annir og þarf nemandi að ljúka að meðaltali 33-37 einingum á önn. Lágmarkseiningafjöldi á brautinni er 200 einingar. |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
200 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Lýsing: | Nemendur velja 80 einingar úr öllu námsframboði skólans. Þær einingar geta verið í bóklegum, verklegum og eða listgreinaáföngum. Við val á áföngum þarf nemandi að hafa í huga samsetningu áfanga hvað þrepaskiptingu varðar til að uppfylla skilyrði aðalnámskrár. Bent er á að við skipulagningu náms á opinni stúdentsbraut er æskilegt að nemendur hafi samráð við náms- og starfsráðgjafa og skipuleggi nám sitt í samræmi við frekari námsáætlanir með aðstoð þeirra. |