Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Kjörsviðsbraut (Staðfestingarnúmer 281) 17-281-3-6 | stúdent | hæfniþrep 3 |
Lýsing: | Á kjörsviðsbraut er lögð áhersla á gott almennt nám með sérstaka áherslu á góða þekkingu á sérsviði að eigin vali. Að loknu námi eiga nemendur að hafa góða undirstöðuþekkingu á áðurnefndu sérsviði og vera færir um að nýta sér hana við margvísleg verkefni og til frekara náms. Valmöguleikar, s.s. lokaverkefni á braut, gefa nemendum kost á því að sveigja námið að einhverju leyti að þörfum sínum og áhugasviðum. Á þann hátt geta þeir einnig undirbúið sig fyrir ýmisskonar framhaldsnám, t.d. með hliðsjón af fyrirliggjandi aðgangsviðmiðum námsbrauta háskólanna enda er stúdentspróf undirbúningur fyrir háskólanám. Nemendur sem nota brautina sem undirbúning fyrir bóknám á háskólastigi þurfa að ljúka þremur áföngum (a.m.k. 13 einingum) í þriðja tungumáli á fyrsta hæfniþrepi. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Inntökuskilyrði á kjörsviðsbraut eru að nemandi hafi að lágmarki einkunnina C í kjarnagreinum úr grunnskóla. Til að hefja nám á öðru þrepi í kjarnagreinum þarf nemandi að lágmarki einkunnina B í viðkomandi grein úr grunnskóla. |
Skipulag: | Nám á kjörsviðsbraut getur verið bæði verklegt og bóklegt og fer fram í skólanum eða á stað sem skólinn viðurkennir. Á brautinni er lögð áhersla á nám á völdu sérsviði. Kjarninn samanstendur af áföngum sem nemendur af öllum stúdentsbrautum taka og svo tekur nemandinn áfanga í frjálsu vali á völdu sérsviði. Frjálsu vali þarf nemandinn að haga þannig að skilyrðum aðalnámskrár um þrepaskiptingu náms til stúdentsprófs sé fullnægt. Vegna smæðar skólans geta þær aðstæður komið upp að æskilegt eða jafnvel nauðsynlegt kann að reynast að sækja nám í einstaka áfanga/áföngum til annarra skóla s.s. með fjarnámi.. |
Námsmat | Símat er ríkjandi þáttur í námsmati skólans og er áhersla lögð á fjölbreyttar matsaðferðir til að koma til móts við mismunandi þarfir nemenda. Leiðsegjandi mat er lykilatriði í námsmati. Umgjörð námsmats er útfært í skólanámskrá, en nánar er kveðið á um námsmat einstakra áfanga í kennsluáætlunum hverju sinni. Stöðumat er gefið tvisvar á önn í öllum námsgreinum. |
Starfsnám: | |
Reglur um námsframvindu: | Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 200 einingar. Námstími til stúdentsprófs er áætlaður 3 ár en getur verið sveigjanlegur. Gert er ráð fyrir að nemendur ljúki 33-34 einingum á önn. Lokaeinkunn hvers áfanga má ekki vera lægri en 5,0. |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
200 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Bundið pakkaval
Fjöldi pakka sem nemendur velja: | 1 af 3 |
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Lýsing: | Nemendur velja 103 einingar í frjálsu vali. Við val á einingum í frjálsu vali þarf að hafa í huga að uppfylla skilyrði um þrepaskiptingu. Nemendur með bóklega sérhæfingu verða að taka þrjá áfanga á 1. hæfniþrepi í þriðja erlenda tungumáli. Áður en nemendur velja kjörsviðsbraut og áfanga á henni skulu þeir leita til náms- og starfsráðgjafa og/eða áfangastjóra vegna námsskipulagsins í heild sinni. |