Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Náttúrufræðibraut - búfræðisvið (Staðfestingarnúmer 524) 22-524-3-7 stúdent hæfniþrep 3
Lýsing: Landbúnaðarháskóli Íslands og Menntaskóli Borgarfjarðar standa saman að námbraut þar sem nemendur hafa kost á að útskrifast með stúdentspróf frá MB og búfræðipróf frá LbhÍ. Náttúrufræðibraut með búfræðisviði er ætlað að veita nemendum undirbúning undir háskólanám í náttúru- og búvísindum og tekur það að jafnaði 4 ár. Nemendur taka tvö fyrstu árin (4 annir) í Menntaskóla Borgarfjarðar þar sem megináherslan er á kjarnagreinar til stúdentsprófs og valdar greinar á sviði raungreina. Í brautarkjarna er einnig lögð áhersla á samþættingu vísinda, tækni, verkfræði, lista, hagnýtrar stærðfræði og stafrænnar miðlunar. Seinni tvö árin taka nemendur við búfræðibraut Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Nemendur brautskrást með stúdentspróf frá Menntaskóla Borgarfjarðar og búfræðipróf frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Þær skyldugreinar sem nemendur þurfa að taka við Landbúnaðarháskóla Íslands eru eftirfarandi: Búfræðigreinar (10 f-ein), búfjárgreinar (27 f-ein), bútæknigreinar (20 f-ein), búrekstrargreinar (16 f-ein), jarðræktar- og gróðuráfangar (20 f-ein) og valgreinar (33 f-ein). 15% á 1 þrepi, 20% á 2 þrepi, 49% á 3 þrepi og 15% á 4 þrepi. Sjá nánar á heimasíðu Lbhí. Til að ljúka stúdentsprófi frá Menntaskóla Borgarfjarðar með tilskilinn fjölda eininga á hverju hæfniþrepi verða nemendur að velja valfög við Lbhí þannig að 15 einingar verði á 1. þrepi, 9 einingar á 2. þrepi og 3 einingar á 4. þrepi. Nemendur klára þá námsbrautina með 17% á 1. þrepi, 44% á 2. þrepi, 32% á 3. þrepi og 7% á 4. þrepi.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í dönsku, ensku, íslensku eða stærðfræði þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla eða að hafa lokið fyrsta þreps áfanga í þessum greinum.
Skipulag: Á náttúrufræðibraut- búfræðisviði er fyrst og fremst verkefnamiðað bóklegt nám. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, t.d. fyrirlestrar, leitarnám, hópvinna, verklegar æfingar og rauntengt nám. Nemendur taka 114 einingar við Menntaskóla Borgarfjarðar og að lágmarki 126 einingar við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Námsmat Námsmatið er fyrst og fremst leiðsagnarmat en formleg lokapróf í lok anna eru ekki til staðar. Vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Í upphafi hverrar annar skal nemendum kynnt kennsluáætlun og námsmarkmið svo og tilhögun námsmats hvers áfanga. Sjá nánar í skólanámskrá.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Lágmarkseiningafjöldi til stúdentsprófs er 240 einingar en heildareiningafjöldi ræðst af þeim einingum á búfræðisviði sem við bætast. Reglur um námsframvindu eru samkvæmt skólareglum. Sjá nánar í skólanámskrá.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • lesa, rita, skilja og tjá sig á viðeigandi máta á íslensku og erlendum tungumálum
  • nýta sér upplýsinga- og samskiptatækni
  • eiga uppbyggileg samskipti við annað fólk í ræðu og riti
  • sýna umburðarlyndi og ábyrgð með öfluga siðferðisvitund, víðsýni, frumkvæði og sjálfstraust
  • hugsa og starfa á gagnrýninn og skapandi hátt
  • sýna sjálfstæði og taka ábyrgð á eigin námi
  • efla eigin sjálfsmynd og nýta sér styrkleika sína
  • tileinka sér lífsvenjur sem eru uppbyggilegar fyrir líkamlegt og andlegt heilbrigði
  • virða umhverfi sitt og skilja mikilvægi sjálfbærni
  • meta gildi menningararfsins í heimabyggð og umheiminum
  • þekkja og geta beitt vísindalegum vinnubrögðum við úrlausn verkefna
  • taka þátt í atvinnulífinu
  • taka þátt í lýðræðissamfélagi og bera virðingu fyrir ólíkri menningu innan þess
  • hafi þekkingu og færni til að takast á við búrekstur og alhliða landbúnaðarstörf, ekki síst á sviði rekstrar, bútækni, jarð- og búfjárræktar
  • miðla þekkingu sinni og hugmyndum með stafrænum hætti
  • samþætta vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði í nýsköpun og þróun
  • takast á við frekara nám á sviði almennra náttúruvísinda, búvísinda og dýralækninga

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

240  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Kjarni náttúrufræðibrautar - búfræðisviðs
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Nemendur taka valgreinar við Landbúnarháskóla Íslands. Þær greinar sem nemendur þurfa að taka við Lbhí eru eftirfarandi: Búfræðigreinar (10 f-ein), búfjárgreinar (27 f-ein), bútæknigreinar (20 f-ein), búrekstrargreinar (16 f-ein), jarðræktar- og gróðuráfangar (20 f-ein) og valgreinar (33 f-ein). 15% á 1 þrepi, 20% á 2 þrepi, 49% á 3 þrepi og 15% á 4 þrepi. Sjá nánar á heimasíðu Lbhí.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • með því að fjalla um efnið í ýmsum áföngum stærðfræði og raunvísinda
  • með því að þjálfa markvisst talnalestur og túlkun á tölulegum upplýsingum
  • með því að afla gagna og kynna niðurstöður á skapandi hátt
Námshæfni:
  • með því að þjálfa nemendur í að setja sér raunhæf markmið í námi og vinna að þeim
  • með því að þjálfa nemendur í námstækni ólíkra námsgreina
  • með því að taka fyrir námshæfni og námstækni á fyrstu önn nemenda í skólanum í lífsleikniáfanga
  • með því að þjálfa nemendur sérstaklega í námstækni og vinnubrögðum raunvísinda
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • með því að gera kröfu um að verkefnum sé skilað á fjölbreyttan hátt
  • með því að leggja áherslu á myndræn skil ekki síður en rituð
  • með því að leggja áherslu á meðferð heimilda og reglur um höfundarrétt
  • með því að fjalla um listir og listasögu í tilteknum áföngum
  • með því að kenna frumkvöðlafræði
  • með því að fara í vettvangsferðir á vettvang leiklistar, stjórnmála og jarðfræði
Jafnrétti:
  • með því að skapa jafnrétti til náms, m.a. með því að bjóða upp á nemendagarða
  • með því að bjóða upp á fjölbreytt námsframboð
  • með því að fjalla um fjölmargar hliðar jafnréttis í tilteknum áföngum
  • með því að fjalla um staðalmyndir, kynímyndir, kyn og kyngervi í tilteknum áföngum
  • með því að koma fram við alla af virðingu og jafnræði
Menntun til sjálfbærni:
  • með því að fjalla sérstaklega um málefnið í tilteknum áföngum skólans
  • með því að vera þátttakandi í verkefninu skólar á grænni grein - græn fáni
  • með því að halda á lofti gagnrýnni umræðu um umhverfi, samfélag, náttúru og sameiginlega ábyrgð
  • með því að fjalla um jöfnuð innan kynslóða og á milli kynslóða
  • með því að gera nemendur meðvitaða um neyslu og nýtingu auðlinda jarðar
  • með því að virkja nemendur í þeirri hugsun um að flokkun á sorpi er nauðsynleg, en einnig hvernig er hægt að minnka neyslu
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • með því að kenna erlend tungumál á fjölbreyttan máta
  • með því að stuðla að því að tjáning og samskipti í tilteknum tímum fari fram á erlendu tungumáli
  • með því að nemendur afli sér upplýsinga á erlendum tungumálum í tilteknum áföngum
  • með því að nemendur kynnist menningu í þeim löndum sem tungumálið er notað
Heilbrigði:
  • með því að vera hluti af Heilsueflandi framhaldsskóla
  • með því að gera nemendum skylt að sækja líkamsrækt, innan veggja skólans eða utan
  • með því að vera með virka eineltisáætlun
  • með því að vera í góðu samstarfi við nemendafélag skólans
  • með því að vera þátttakandi í forvarnarhópi sveitarfélagsins
  • með því að efla sjálfstraust nemandans með leiðsagnar-, jafningja- og sjálfsmati
  • með því að efla sjálfstæði nemandans með ýmis konar verkefnum í staðinn fyrir fyrirfram ákveðin forskriftar verkefni
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • með því að leggja áherslu á íslenskt samfélag í íslenskuáföngum þar sem íslenskar bókmenntir eru lesnar
  • með því að nemendur lesi efni í ýmsum námsgreinum og öðlist þannig bæði grunnþekkingu á viðkomandi sviði og fái yfirsýn sem gerir þá að betri lesendum á öllum sviðum
  • með því að leggja áherslu á hópavinnu, að nemendur færi rök fyrir skoðunum sínum og haldi kynningar á íslensku
  • með því að nemendur kynnist blæbrigðaríkum og fjölbreyttum orðaforða í gegnum lestur bókmennta
  • með því að nemendur taki þátt í alls kyns verkefnavinnu þar sem reynir á samskipti og samskiptahæfni nemenda
Lýðræði og mannréttindi:
  • með því að fjalla um efnið í tilteknum áföngum í skólanum
  • með því að kennarar ástundi lýðræðisleg vinnubrögð þar sem því er við komið
  • með því að stjórnendur ástundi lýðræðisleg vinnubrögð þar sem því er við komið
  • með því að leggja áherslu á virðingu í framkomu og samskiptum allra aðila innan skólans
  • með því að leggja áherslu á hópavinnu og jákvæð samskipti í verkefnavinnu
  • með því að leggja ríka áherslu á að nemendur og kennarar tileinki sér lýðræðislega samræðu í daglegu starfi
  • með því að bera virðingu fyrir fjölbreytileika mannfólksins