Námsbraut
Titill brautar: | Námsleið: | Námslok: |
Popplína (Staðfestingarnúmer 460) 20-460-3-9 | rytmísk tónlistarbraut-popplína | hæfniþrep 3 |
Lýsing: | Með námi á almennri poppbraut er lagður grunnur að margvíslegum störfum á sviði popptónlistar; sköpun, flutningi, tæknivinnu og hljóðfæraleik í þeim hlutföllum sem hverjum nemanda hentar. Einnig býr námið þá nemendur sem það kjósa undir háskólanám á einhverjum þessara sviða. Námið er einstaklingsmiðað og miðar að því að treysta grunn nemenda í sem flestum hliðum popptónlistar samtímans. Í brautarkjarna eru lagasmíðar, hljóðtækni, upptökustjórnun, raftónlist og verkefnastjórnun. Gert er ráð fyrir námi á aðalhljóðfæri/söng öll árin en auk þess velur nemandi sér á lokaári leiðbeinanda lokaverkefnis og vinnur með honum að mótun eigin tónlistar. Valgreinar á brautinni gefa nemendum möguleika á að móta námið að eigin þörfum og áhugasviðum og sækja valnámsskeið á ólíkum sviðum tónlistar, þ.m.t. klassískrar tónlistar og jazz. Lögð er sérstök áhersla á samleik og samvinnu nemenda og fá þeir þjálfun í fjölbreyttu samspili í stærri og minni hópum. |
Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar
Inntökuskilyrði: | Inntökuskilyrði fyrir nám við brautina eru að umsækjandi hafi undirstöðu í hljóðfæraleik og/eða söng og sé byrjaður að fást við sköpun tónlistar með einhverjum hætti. Nemendur eru boðaðir í viðtal og inntökupróf þar sem lagt er mat á hæfni umsækjanda. Nemandi þarf að sýna fram á vilja og hæfni til að skapa tónlist, auk góðrar undirstöðu í hljóðfæraleik og/eða söng. |
Skipulag: | Nám á brautinni er að lágmarki 150 eininga nám þar sem nemendur tileinka sér hæfni á þriðja þrepi. Nemendur velja sér aðalnámsgrein sem getur verið hljóðfæraleikur, söngur, tónsmíðar eða fræðigreinar tónlistar. Valeiningar á brautinni gefa nemendum möguleika á að móta námið að eigin þörfum og áhugasviðum og sækja námsskeið á ólíkum sviðum tónlistar. Þannig geta nemendur undirbúið sig fyrir ýmiss konar framhaldsnám á sviði tónlistar. Nemendur stjórna námshraðanum og geta fengið einingar brautarinnar metnar við aðra framhaldsskóla. |
Námsmat | Lögð er áhersla á að beita fjölbreyttum aðferðum við námsmat og að meta vinnu nemenda jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat getur verið fólgið í símati eða lokaprófi eða hvoru tveggja. Við námsmat er tekið mið af þekkingar-, hæfni- og leikniviðmiðum. Umgjörð námsmats er útfærð nánar í skólanámskrá og kveðið er á um námsmat fyrir tiltekna áfanga í kennsluáætlun hverju sinni. Nemendur taka hljóðfæra-/söngpróf á haust- og vorönn og fá einkunnir fyrir iðni og umsögn kennara á hverri önn. Jafnframt taka nemendur próf í bóklegum greinum við lok hvers áfanga. |
Starfsnám: | |
Reglur um námsframvindu: | Lágmarkseiningafjöldi á brautinni er 150 einingar. Í áfangalýsingum koma fram skilyrði um undanfara. Lágmarkseinkunn áfanga er 5 en í einstaka áföngum er heimilt að gera kröfu um hærri lágmarkseinkunn til þess að taka framhaldsáfanga. Samkvæmt aðalnámskrá er miðað við að nemandi í fullu námi taki 30 einingar á önn. |
Hæfniviðmið: |
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
|
Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni
150 fein. |
Kjarni Skylduáfangar brautarinnar
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
Bundið pakkaval
Fjöldi pakka sem nemendur velja: | 1 af 2 |
Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni
Lýsing: | Nemendur velja 46 einingar úr öðrum áföngum skólans. Nemendur geta valið áfanga bæði í rytmískri og klassískri tónlist. Við hvern áfanga er tiltekið hvaða undanfara nemendur þurfa að hafa lokið til að velja áfangann. Í frjálsu vali þurfa nemendur að gæta að reglum í aðalnámskrá um hlutfall náms á hæfniþrep. Nemendur fá aðstoð náms- og starfsráðgjafa við val á áföngum svo nemendur geti aðlagað námið og sérhæfingu þess sem best að sínum áhuga og framtíðaráformum. |