Námsbraut

Titill brautar: Námsleið: Námslok:
Rytmísk tónlistarbraut (Staðfestingarnúmer 225) 16-225-3-9 rytmísk tónlistarbraut hæfniþrep 3
Lýsing: Brautin veitir nemendum trausta grunnmenntun á sviði tónlistar, bæði þeim sem hyggjast gerast atvinnumenn í tónlist og sem undirbúningur undir fjölbreytt nám og störf. Brautarkjarni rytmískrar tónlistarbrautar samanstendur af þeim námsgreinum sem þarf til þess að ljúka framhaldsprófi í rytmískri tónlist. Þriðjungur brautarinnar er í frjálsu vali og gefur það hverjum nemanda tækifæri til þess að aðlaga námið og sérhæfingu þess að sínum áhuga og framtíðarstefnu. Boðið er upp á fjölbreytta samspilsáfanga og nemendur eru hvattir til að taka virkan þátt í tónleikum og lifandi tónlistarflutningi sem skólinn stendur fyrir. Jafnframt er lögð áhersla á að veita nemendum haldgóða kennslu í bóklegum tónlistargreinum. Að námi loknu hafa nemendur hlotið víðtæka þjálfun í því að koma fram á tónleikum, bæði í einleiks- og samspilshlutverki og hafa haldið sjálfstæða opinbera tónleika. Nemendur sem útskrifast af brautinni eiga að hafa færni til að nýta sér þekkingu sína á fræðigreinum tónlistar, bæði við tónlistarflutning, umfjöllun um tónlist og frekara nám. Nemendur hafa einnig öðlast færni til að sýna frumkvæði og persónulega túlkun við tónlistarflutning og geta fjallað um tónlist á ábyrgan, gagnrýnan og skapandi hátt.

Grunnupplýsingar Meginatriði brautarlýsingar

Inntökuskilyrði: Inntökuskilyrði eru að nemandi hafi lokið miðprófi í tónlist með fullnægjandi árangri. Jafnframt fer fram inntökupróf í hljóðfæraleik og fræðigreinum þar sem lagt er faglegt mat á hæfni nemanda.
Skipulag: Nám á brautinni er að lágmarki 150 eininga nám þar sem nemendur tileinka sér hæfni á þriðja þrepi. Nemendur velja sér aðalnámsgrein sem getur verið hljóðfæraleikur, söngur, tónsmíðar eða fræðigreinar tónlistar. Valeiningar á brautinni gefa nemendum möguleika á að móta námið að eigin þörfum og áhugasviðum og sækja námsskeið á ólíkum sviðum tónlistar. Þannig geta nemendur undirbúið sig fyrir ýmiss konar framhaldsnám á sviði tónlistar. Nemendur stjórna námshraðanum og geta fengið einingar brautarinnar metnar við aðra framhaldsskóla.
Námsmat Lögð er áhersla á að beita fjölbreyttum aðferðum við námsmat og að meta vinnu nemenda jafnt og þétt yfir námstímann. Námsmat getur verið fólgið í símati eða lokaprófi eða hvoru tveggja. Við námsmat er tekið mið af þekkingar-, hæfni- og leikniviðmiðum. Umgjörð námsmats er útfærð nánar í skólanámsskrá og kveðið er á um námsmat fyrir tiltekna áfanga í kennsluáætlun hverju sinni. Nemendur taka hljóðfæra-/söngpróf á haust- og vorönn og fá einkunnir fyrir iðni og umsögn kennara á hverri önn. Jafnframt taka nemendur próf í bóklegum greinum við lok hvers áfanga.
Starfsnám:
Reglur um námsframvindu: Lágmarkseiningafjöldi á brautinni er 150 einingar. Í áfangalýsingum koma fram skilyrði um undanfara. Lágmarkseinkunn áfanga er 5 en í einstaka áföngum er heimilt að gera kröfu um hærri lágmarkseinkunn til þess að taka framhaldsáfanga. Samkvæmt aðalnámskrá er miðað við að nemandi í fullu námi taki 30 einingar á önn.
Hæfniviðmið:

Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...

  • Halda opinbera tónleika.
  • Koma fram á tónleikum bæði í hljómsveit og í einleikshlutverki.
  • Nýta sér menntun sína og þekkingu á fræðigreinum tónlistar.
  • Miðla tónlist á sjálfstæðan og skapandi hátt.
  • Sýna frumkvæði og persónulega túlkun við tónlistarflutning.
  • Fjalla um tónlist á ábyrgan, gagnrýnan og skapandi hátt.
  • Vera ábyrgur og virkur einstaklingur í lýðræðissamfélagi.
  • Taka þátt í menningarlífi hér heima og erlendis og gera sér grein fyrir samfélagslegu hlutverki listamannsins.
  • Greina eigin verk og annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi.

Einingafjöldi Fjöldi framhaldsskólaeininga sem þarf til að útskrifast af brautinni

150  fein.

Kjarni Skylduáfangar brautarinnar


Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Hlutfall eininga á þrepum í kjarna
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
 
 
 
 

Bundið pakkaval

Hljóðfæraleikur
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Söngur
Námsgrein
Þrep 1
Þrep 2
Þrep 3
Þrep 4
fein.
Fjöldi pakka sem nemendur velja: 1 af 2

Frjálst Val Aðrir óskilgreindir áfangar sem nemendur geta valið/metið á námsbrautinni

Lýsing: Nemendur velja 50 einingar úr öðrum áföngum skólans. Nemendur geta valið áfanga bæði í rytmískri og klassískri tónlist. Við hvern áfanga er tiltekið hvaða undanfara nemendur þurfa að hafa lokið til að velja áfangann.Í frjálsu vali þurfa nemendur að gæta að reglum í aðalnámskrá um hlutfall náms á hæfniþrep. Nemendur fá aðstoð náms- og starfs ráðgjafa við val á áföngum svo nemendur geti aðlagað námið og sérhæfingu þess sem best að sínum áhuga og framtíðaráformum.

Grunnþættir og lykilhæfni Hvernig unnið er með grunnþætti og lykilhæfni

Læsi, tjáning og samskipti um tölur og upplýsingar:
  • Á námsbrautinni er unnið með læsi, tjáningu og samskipti um tölur og upplýsingar með því að nemendur fá hagnýta þjálfun í mörgu því sem kemur að því að starfa sem sjálfstætt starfandi listamaður, líkt og að gera fjárhagsáætlanir og sjá um einfaldan sjálfstæðan atvinnurekstur.
Námshæfni:
  • Á námsbrautinni er unnið með námshæfni með því að þjálfa markvisst ólíka þætti í tónlistarnámi. Að nemendur vinni að því að öðlast bæði vald á sínu hljóðfæri undir handleiðslu fyrsta flokks tónlistarmanna og fái yfirsýn yfir ólíkar fræðigreinar tónlistar. Lögð er áhersla á að nemendur geti nýtt sér menntun sína og þekkingu til tónlistarflutnings og sjálfstæðrar listsköpunar.
Skapandi hugsun og hagnýting þekkingar:
  • Sköpun er einn af lykilþáttum skólastarfsins og nemendur þjálfaðir í að túlka verk á persónulegan og sjálfstæðan hátt. Í skólanum er reynt er að skapa umhverfi þar sem nemendur fá þá þjálfun sem nauðsynleg er til að þeir geti þroskast sem sjálfstæðir listamenn. Þar er bæði átt við frumsköpun og þroska til að túlka verk annarra af innsæi og þekkingu. Lögð er áhersla á að nemendur fái þann þekkingargrunn og handverkskunnáttu sem nauðsynleg eru til þess að geta túlkað tónlist á áræðinn og persónulegan hátt. Smám saman nái nemendur að styrkjast í sjálfstæðum og skapandi vinnubrögðum og fái svigrúm til stærri sjálfstæðra verkefna þar sem þeir geta farið eigin leiðir í listsköpun sinni.
Jafnrétti:
  • Skólinn starfar eftir jafnréttisáætlun og setur sér stefnu um hvernig henni skuli framfylgt. Jafnrétti endurspeglast í starfsemi skólans, viðhorfum, samskiptum og skólabrag. Nemendur fá fræðslu um jafnréttismál og eru hvattir til þess að vinna gegn hvers konar fordómum og misrétti sem þeir koma auga á. Í skólastarfinu er lögð áhersla á sjálfsvirðingu og sjálfstæði beggja kynja og á að nemendur beri virðingu fyrir trúarbrögðum, kynþætti, kynhneigð og skoðunum annarra. Markmiðið er að þeir öðlist skilning, temji sér umburðarlyndi og geti tekið virkan og ábyrgan þátt í fjölmenningarlegu samfélagi. Í náminu eru kynntar ýmsar stefnur úr tónlistarsögunni og lögð er áhersla á að fjalla um tónlist úr ólíkum menningarheimum. Í tónlistarsögu og tónbókmenntum læra nemendur að greina áhrif ýmissa þátta á líf tónskálda og tónlistarmanna, líkt og stéttar, trúarbragða, þjóðernis, kynhneigðar, búsetu og litarháttar. Í skólanum er gerð sú krafa að nemendur sýni hver öðrum virðingu á sama hátt og kennarar koma fram við nemendur af virðingu.
Menntun til sjálfbærni:
  • Á námsbrautinni er unnið með menntun til sjálfbærni með því að leggja áherslu á að viðhalda og efla menningarlega fjölbreytni. Markmiðið er að gera nemendur meðvitaða um umhverfi sitt, kenna þeim að njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt. Fjallað er um sameiginlega ábyrgð mannkyns á umhverfi sínu og sjálfbæra þróun. Einnig eru skapandi greinar kynntar og jákvæð áhrif þeirra á samfélagið í efnahagslegum og menningarlegum skilningi, meðal annars hvernig listgreinar geta skapað hagvöxt án þess að gengið sé á lífsgæði komandi kynslóða.
Læsi, tjáning og samskipti á erlendum tungumálum:
  • Á námsbrautinni er unnið með læsi, tjáningu og samskipti á erlendum tungumálum með því að leggja ríka áherslu á að nemendur séu læsir á fræðilega texta um tónlist á ensku. Í söngkennslu og tónlistarkennslu þar sem unnið er með texta er lögð áhersla á skilning og réttan framburð. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur fái innsýn í ólíka menningarheima og öðlist aukið menningarlæsi. Nemendur þurfa að tileinka sér tungutak tónlistar og undirgreina hennar á ólíkum tungumálum.
Heilbrigði:
  • Á námsbrautinni er unnið með heilbrigði með því að bjóða upp á fjölbreytt námskeið í hreyfingu og heilsueflingu allan námstímann. Í tónlistarnámi er lykilatriði að nemendur læri rétta líkamsbeitingu og séu vel á sig komnir líkamlega og andlega. Nemendur eru hvattir til heilbrigðra lífshátta og lögð áhersla á að byggja upp jákvæða sjálfsímynd. Þau hafa jafnframt aðgang að námsráðgjöf allan námstímann.
Læsi, tjáning og samskipti á íslensku:
  • Á námsbrautinni er unnið með læsi, tjáningu og samskipti á íslensku með því að leggja ríka áherslu á samspil og samvinnu nemenda þar sem reynir á samskiptahæfni og tjáningu. Þar er bæði átt við það að koma fram og flytja tónlist en jafnframt að tjá sig á skýran og skilmerkilegan hátt í ræðu og riti. Nemendur þurfa að geta svarað spurningum málefnalega og flutt mál sitt skipulega. Í bóklegum greinum tónlistar er lögð áhersla á að nemendur rökstyðji skoðanir sínar og fái þjálfun í að ræða um tónlist á breiðum grundvelli. Í öllum áföngum er lögð áhersla á að nemendur öðlist aukið læsi í tónlist og geti rætt um verk sín og annarra af þekkingu og umburðarlyndi. Samræða, greining og skilningur á undirliggjandi samhengi eru þjálfuð með markvissum hætti.
Lýðræði og mannréttindi:
  • Á námsbrautinni er unnið með lýðræði og mannréttindi með því að leggja áherslu á að styrkja nemendur í því að taka virkan og ábyrgan þátt í lýðræðissamfélagi. Nemendur eru hvattir til að sýna mismunandi skoðunum, lífsgildum og trúarbrögðum virðingu og umburðarlyndi. Leitast er við að auka þekkingu þeirra á samfélaginu og félagslegu umhverfi, jafnrétti, lýðræði og mannréttindum. Í tungumálanámi er lögð áhersla á hópvinnu sem eykur samábyrgð nemenda. Auk þess er unnið að því að þjálfa gagnrýna hugsun á markvissan hátt og nemendur hvattir til þess að taka þátt í þjóðfélagsumræðu og láta sig samfélagsmál varða. Nemendur eru þjálfaðir til að öðlast skilning á verkum annarra og tjá sig um þau af umburðarlyndi og þekkingu. Þeir eru hvattir til að sýna samfélagslega ábyrgð og að þróa með sér skilning á hlutverki og áhrifum tónlistar í samfélaginu. Í náminu er jafnframt fjallað um höfundarrétt, sæmdarrétt og lög og reglugerðir sem gilda um tónlist. Jafnframt er miðað að því að þjálfa nemendur í lýðræðislegum vinnubrögðum.